is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/24867

Titill: 
  • Vegtenging um Skerjafjörð
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Höfuðborgarsvæðið hefur vaxið mikið á stuttum tíma og vegakerfið samhliða því. Mikil umferð um helstu umferðaræðar er orðið daglegt vandamál á höfuðborgarsvæðinu. Því hafa oft sprottið upp umræður hvernig leysa megi úr þeim vanda. Ein hugsanleg lausn er vegtenging yfir Skerjafjörð.
    Markmið verkefnisins er tvíþætt. Annars vegar að leggja fram fimm tillögur um vegtengingu um Skerjafjörð, lista upp forsendur, bera tillögurnar saman og meta hvort þær séu fýsilegar út frá umferðarlegu sjónarmiði, áður en næstu skref eru tekin og önnur áhrif eins og meðal annars umhverfisáhrif eru metin til hlítar. Hins vegar er einnig lagt upp með að skapa grundvöll fyrir, og koma af stað umræðu um vegtengingu yfir Skerjafjörð.
    Notast var við nýjustu útgáfuna af umferðarlíkani höfuðborgar-svæðisins sem gefið var út fyrir svæðisskipulag höfuðborgar-svæðisins 2015-2040. Tillögurnar fimm voru keyrðar inn í umferðar-líkanið og niðurstöður bornar saman við þá sviðsmynd sem miðar við lágmarksframkvæmdir og óbreyttar ferðarvenjur fram til ársins 2040.
    Niðurstöður leiddu ljós að miðað við gefnar skipulagsforsendur er klárlega grundvöllur fyrir því að skoða vegtengingu yfir Skerjafjörð nánar. Besta tillagan að mati höfundar í þessu verkefni er tillaga 5 eða RG1 eins og hún kallast. Áætlað umferðarmagn fyrir hönnunarárið 2040 eru tæplega 16.300 ökutæki á sólarhring og sé litið til umferðarlíkans höfuðborgarsvæðisins árið 2040 sparast rúmlega 18.500.000 km notkun á umferðarnetið á ársgrundvelli ásamt því að meðalaksturstími á hverja ferð styttist.

  • Útdráttur er á ensku

    The greater Reykjavík area has grown very fast in recent years and following this the road network has expanded, causing daily problems concerning the capacity of the main roads in the city. Discussions are ongoing on how to solve this problem and one possible solution could be a road connection over Skerjafjörður. The main purpose of this project is to create a foundation in the discussion about whether or not a road connection over Skerjafjörður, between Reykjavík and Álftanes is a feasible solution with perspective to traffic, before analysing other important factors such as the environment. This is done by analysing five different proposals and model them with the traffic modelling for the greater Reykjavik area. For comparison, the traffic model published in the new area plan for the greater Reykjavik area 2015-2040 is used and results of the differences used to help determine the feasibility of such a connection.
    Results showed that according to given planning assumptions there is a clear foundation for looking further into the possibility of a road connection over Skerjafjörður, between Reykjavík and Álftanes. The best solution according the author would be proposal number 5 or RG1. Annual average daily traffic (AADT) for that proposal estimates to be around 16.300 veh/day. Looking at the current traffic simulation model for the greater Reykjavik area the total savings on usage on the traffic network would then account to about 18.500.000 km og a yearly basis and the mean average travel time in the system shortens.

Samþykkt: 
  • 2.6.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/24867


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MS_Lokaverk_Ragnar_tilbuid.pdf4,8 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
rafraen_yfirlysing.pdf308,37 kBLokaðurYfirlýsingPDF