Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/24880
Set frá síðjökultíma finnst víðsvegar um Ísland og veitir upplýsingar um jöklunarsögu á landinu. Setið hefur víða verið rannsakað en þó eru einstaka svæði þar sem jöklunarsaga hefur ekki verið skoðuð. Húsavík-Eystri á Austurlandi er eitt af þeim svæðum og þar er um 30 m há opna sem inniheldur set frá síðjökultíma. Opnan var rannsökuð og fannst þar hvalbein sem var aldursgreint og veitti það mikilvægar upplýsingar um umhverfisaðstæður þegar setið settist til. Rannsókn leiddi í ljós að sjávarstöðubreytingar og jöklar hafa komið við sögu í setlögunum í opnunni. Neðstu setlög sýndu að afstætt sjávarmál var hærra en í dag og gæti það stafað af fargi jökla á landinu sem voru þó búnir að minnka síðan síðasta jökulskeið náði hámarki sínu. Hvalbeinið fannst í miðri opnunni og er aldur þess frá Allerød en þá var sjávarstaða hærri vegna aukins fargs jökla sem náðu þó ekki út í sjó. Á yngri Dryas stækkuðu jöklar meira og náði þá jökull út í sjó að hluta til á svæðinu og skildi eftir sig jökulruðning. Eftir að sá jökull tók að hörfa hækkaði afstætt sjávarmál ennþá meira en áður var og náði fjöruset að setjast til og mynda fjörumörk efst í opnunni.
Sediments from lateglacial time can be found all over Iceland and provide information about glacial history. The sediments have been researched but still there are individual areas where glacial history has not been examined. Húsavík-Eystri in the eastern part of Iceland is one of those areas and there is a 30 m high section of sedimentary layers which contains sediments from lateglacial time. Research was done on the section and there a whalebone was found which was dated and provided important information on environmental conditions when the sediments were depositing. The research revealed that sea level changes and glaciers impacted on the sedimentary section. The bottom sedimentary layers show that relative sea level was higher compared to today and that may have been because of glacier load on the land although the glaciers had been getting smaller since the last glacial maximum. The whalebone was found in the middle of the section and its age is from Allerød when sea level was higher due to increased glacier load but then the glaciers did not reach to the sea. During Younger Dryas glaciers grew more and then a glacier reached partly out into sea in the area and deposited till. When said glacier retreated relative sea level got even higher then before and then beach sediments deposited at the top of the sedimentary section.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS-ritgerð Sigurveig Gunnarsdóttir.pdf | 3.77 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing um meðferð BS.jpg | 573.74 kB | Lokaður til...25.06.2136 | Yfirlýsing | JPG |