is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/24973

Titill: 
  • Að mæta einstaklingnum þar sem hann er staddur : reynsla sjúklinga með hjartabilun af persónumiðaðri nálgun og stuðningi við sjálfsumönnun á göngudeild hjartabilunar á LSH
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Tilgangur fyrirhugaðar rannsóknar er að kanna reynslu einstaklinga með hjartabilun af persónumiðaðri nálgun og stuðningi við sjálfsumönnun á göngudeild hjartabilunar á Landspítala Háskólasjúkrahús (LSH). Talið er að tilvikum hjartabilana muni fjölga á komandi árum vegna hækkandi aldurs í samfélaginu sem og öðrum langvinnum sjúkdómum. Sjálfsumönnun er flókið ferli sem felur í sér viðurkenningu einstaklings á einkennum.
    Í rannsókninni verður lögð áhersla á einstaklinga með hjartabilun sem nýta þjónustu göngudeildar hjartabilunar á LSH. Persónumiðuð nálgun er hugtak sem ætti að innleiða betur í heilbrigðisþjónustunni. Sjúklingarnir eru ólíkir og því þarf að mæta þeim þar sem þeir eru staddir hverju sinni. Litið er á þá sem einstaklinga á bak við veikindin þar sem reynsla þeirra og óskir eru settar í forgang. Persónumiðuð nálgun leggur áherslu á að sjúklingar taki þátt í eigin meðferð því er gagnlegt að efla þá til sjálfsumönnunar. Notast verður við Vancouver-skólann í fyrirbærafræði í rannsókninni. Gögnum verður aflað með einstaklingsviðtölum við sjúklinga með hjartabilun sem nýta þjónustu göngudeildar hjartabilunar á LSH og er áætlað að þátttakendur verða alls 20 sjúklingar.
    Höfundar vonast til þess að niðurstöður fyrirhugaðar rannsóknar verði til þess að efla hugtakið persónumiðuð nálgun og að heilbrigðisstarfsfólk verði meira vakandi fyrir nálguninni til að efla einstaklinga til betri sjálfsumönnunar.
    Lykilhugtök: Hjartabilun, persónumiðuð nálgun, sjálfsumönnun, göngudeild.

  • Útdráttur er á ensku

    This thesis is a final project to the completion of a B.Sc. degree in nursing from the University of Akureyri. The aim of the proposed study is to explore the experiences of patients with heart failure, from a person centered care approach, and support for self-care in the outpatient clinic at Landspítali Hospital (LSH). It is believed that the number of heart failure cases will increase in coming years due to increased age in the community, as well as an increase in other chronic diseases.
    The study will focus on individuals with heart failure who use outpatient services for heart failure at LSH. Person centered care is a concept that must be more carefully put into practice in the health care services. Seeing as individuals are different they need to be cared for according to where they are at, and the person behind the illness needs to be considered by giving their experiences and preferences priority. A person centered care approach emphasizes the patient’s active participation in recovery, it is thus useful when motivating individuals towards self-care. Self-care is a complex process that involves the recognition of individual symptoms, and assessing treatment. We utilized the Vancouver school of phenomenology. Data was collected through individual interviews with patients who suffered from heart failure and had utilized the services of the outpatient clinic for heart failure and the participants were 20 patients. The authors hope that the results of the proposed research will strengthen the concept of the person centered care approach to health care, and that it creates awareness among health care providers, which in turn may lead to a more attentive approach when motivating individuals to better self-care.
    Key words: Heart failure, person- centred care, self care, outpatient clinic.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 12.5.2017.
Samþykkt: 
  • 6.6.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/24973


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS - Ritgerð. Hjúkrunarfræði.pdf874.06 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna