is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Meistaraverkefni í viðskiptadeild (MS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25130

Titill: 
  • Stefnumótun í nýjum Íslandsbanka
  • Titill er á ensku Strategic management in a new Íslandsbanki
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar rannsóknar var að skoða mótun og innleiðingu á stefnu
    Íslandsbanka frá því að hann var stofnaður í núverandi mynd árið 2009, og til dagsins
    í dag. Mikill metnaður hefur verið lagður í mótun á stefnu bankans og hafa starfsmenn
    bankans tekið virkan þátt í mótun hennar á árlegum stefnufundum. Í rannsókninni
    voru viðhorf starfsmanna til innleiðingarinnar könnuð og skoðanir framkvæmdastjóra
    og millistjórnenda bornar saman. Þrjár rannsóknarspurningar voru settar fram:
    Hvernig var stefnumótun og innleiðing hennar háttað hjá Íslandsbanka?
    Samræmist stefnumótun og innleiðing hennar í Íslandsbanka á einhvern hátt helstu
    kenningum úr stefnumótunarfræðunum?
    Hvaða munur er á viðhorfi stjórnenda og millistjórnenda innan bankans til
    innleiðingarferlis stefnunnar með tilliti til flokkunarkerfis Miles og Snow?
    Farið var yfir helstu kenningar stefnumótunarfræðanna ásamt kenningum
    Miles og Snow um formgerðarflokkun á stefnum fyrirtækja. Notast var við lýsandi
    samanburðarrannsókn þar sem spurningakönnun var lögð fyrir tvo hópa og svör þeirra
    borin saman. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að þessir hópar séu báðir með
    góða þekkingu á stefnunni, séu almennt ánægðir með innleiðinguna á henni og
    sammála um flesta þætti er varða hana. Munur var þó á viðhorfi hópanna til flokkunar
    á stefnu bankans og hvernig þátttakendur töldu heppilegast að stefnan yrði en þeir
    voru beðnir um að flokka stefnu bankans eftir flokkunarkerfi Miles og Snow.
    Niðurstöður benda einnig til þess að við mótun stefnunnar hafi verið horft til
    stefnumótunarfræðanna.

Samþykkt: 
  • 10.6.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/25130


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BrynjarArnason_MA_lokaverk.pdf1.35 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna

Athugsemd: Verkið er lokað tímabundið vegna viðkvæms efnis.