Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25187
Markmið rannsóknarinnar var að skoða hlutverk náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum og hvort þeir næðu að sinna hlutverkinu í starfsumhverfi sínu. Einnig var skoðuð persónuleg ráðgjöf með áherslu á þá þjónustu sem náms- og starfsráðgjafar og önnur fagþjónusta voru að veita við vanlíðan og geðröskunum.
Eigindleg aðferð var notuð í rannsókninni og voru tekin viðtöl við 10 náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum á Norðurlandi. Haft var samband við fræðslustjóra og skólastjóra í grunnskólum á svæðinu til að fá leyfi til að tala við náms- og starfsráðgjafa skólana.
Niðurstöður sýndu að náms- og starfsráðgjafar á Norðurlandi ná ekki að sinna öllum verkefnum nógu vel vegna tímaskorts. Mikill tími fer í persónulega ráðgjöf og aðstoða nemendur með kvíða, þunglyndi og hegðunarvandamál. Þeir nýta þjónustu sálfræðinga við greiningar og meðferðir en mikil bið er eftir þjónustunni og þurfa náms- og starfsráðgjafarnir því að sinna nemendum á meðan á biðinni stendur.
Frekari rannsókna er þörf á þjónustu náms- og stafsráðgjafa og annarra fagaðila varðandi vanlíðan nemenda og meðferðarþjónustu við skólakerfið.
Lykilhugtök:
Náms- og starfsráðgjafi, hlutverk, sýn, samstarf, persónuleg viðtöl, vanlíðan og sálfræðiþjónusta
The aim of this study was to gain insight into the role of school counselors in schools and to see if their work environment allows them to do their work. Also, to examine personal guidance and counseling with a focus on the services that school counselors and other professional services provide regarding mental disorders. The role of school counselors is diverse and varies between schools.
A qualitative approach was used in the study and 10 school counselors
working in compulsory schools in North of Iceland were interviewed.
Director of Education and principals of the compulsory schools were
contacted to seek permission to talk to the school counselors.
The results showed that school counselors are not managing to handle
all the tasks well enough, due to shortage of time. Much of their time goes into personal guidance and counseling to assist students with anxiety, depression and behavior. They use the services of psychologists to diagnose and treat pupils with mental disorders but the waiting time is long and they need to assist pupils during the wait period.
Further research is needed to measure the service school counselors
and other professionals provide for the for the school system.
Key words:
School counselors, roles, tasks, personal guidance and interviews, distress, counseling
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MPRJónínaMargrétGuðbjartsdóttir2016.pdf | 908.43 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |