is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/25218

Titill: 
  • Móttaka, skipulagning og kennsla nemenda af erlendum uppruna : kennarar og fjölmenning
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í ritgerðinni er greint frá eigindlegri tilviksrannsókn á móttöku og kennslu nemenda af erlendum uppruna í fjórum grunnskólum í einu bæjarfélagi á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig umsjónarkennarar taka á móti nemendum af erlendum uppruna, hvernig þeir skipuleggja nám og kennslu nemenda sem hafa annað móðurmál en íslensku og hvaða bjargir eru kennurum til handa. Einnig var kannað hvaða umgjörð sveitafélagið hefur í tengslum við nemendur af erlendum uppruna og hvaða áherslur skólarnir hafa þegar kemur að móttöku nemenda af erlendum uppruna. Tekin voru viðtöl við fjóra starfandi umsjónarkennara og þeir spurðir út í reynslu sína af móttöku og kennslu nemenda af erlendum uppruna. Við rannsóknina var einnig notuð skjalarýni og handbók bæjarfélagsins um móttöku nemenda af erlendum uppruna var greind en einnig var rýnt í heimasíður skólanna.
    Í skólunum þar sem viðmælendur störfuðu voru fjölmenningardeildir. Viðmælendur töldu sig ekki eiga í vandræðum með að nálgast námsefni fyrir nemendur af erlendum uppruna þar sem þeir gætu alltaf leitað til sérkennara inni í fjölmenningardeildunum sér til stuðnings við skipulagningu náms fyrir nemendur af erlendum uppruna. Þrátt fyrir að viðmælendur teldu sig nokkuð vel í stakk búna við að taka á móti nemendum af erlendum uppruna, töldu þeir að almennt væru kennarar illa undirbúnir við að kenna nemendum af erlendum uppruna inni í bekk. Að þeirra mati töldu þeir að vinna þyrfti að úrbótum í tengslum við endurmenntun kennara.
    Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að þrír af fjórum skólum í rannsókninni hafa unnið markvist við gerð móttökuáætlana. Þær hafa auðveldað móttökuferlið fyrir kennara og veitt þeim öryggi í starfi. Samt sem áður benda niðurstöður til þess að skólarnir í rannsókninni eigi enn eftir að leggja vinnu við að móta næstu skrefin við þróun fjölmenningarlegra skóla. Vinna við að aukna þekkingu kennara á fjölmenningu og fjölmenningarlegri kennslu ættu að vera næstu viðbrögð til að þróa skóla sem vinnur í átt að fjölmenningarlegu samfélagi.

  • Útdráttur er á ensku

    This thesis is a qualitative study based on semi-open interviews. The study reports experiences from four teachers in one community in Iceland. The aim of the study is to explore how teachers receive foreign students and how they organize education for the students as well finding out which resources teachers have in their hands when they have foreign students in their classes. The study also examined the framework that the community had regarding foreign students. In this study documents and webpages of the community and schools were examined.
    All schools in the study had multicultural departments, and the participants in the study all informed that they did not have any problems in regards to accessing learning materials for foreign students. They believe that they have a good aid in the teachers who are stationed inside the multicultural departments in their schools when it comes to welcoming foreign students to the school, organizing their learning material and teaching the students. Participants in the study believe that teachers are generally unprepared to receive foreign students in the class.
    The participants all agreed that work needs to be done to improve the training teacher get in multiculturalism and multicultural education. Conclusions in this study indicate that three of the four schools have worked systematically well in making receptions plans for foreign students. Receptions plans have facilitated the reception progress and provide teachers more security in practice. Results suggest that schools have to work harder in shaping the next steps in development of multicultural education. The second step in the progress is to increase the teacher’s knowledge in multiculturalism and multicultural education as well as work more toward to multicultural society.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 1.5.2022.
Samþykkt: 
  • 14.6.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/25218


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kristín-Sesselja-M-ed-ritgerð lokjaskjal júní.pdf937,63 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna