Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/25330
Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvaða þættir hafa áhrif á áhorfendafjölda á heimaleikjum karlaliðs Breiðabliks í knattspyrnu. Áhorfendur eru ómissandi hluti af íþróttaviðburðum en lítið hefur verið rannsakað hvað hefur mest áhrif á fólk til að mæta á íþróttaviðburði hér á landi. Knattspyrna á Íslandi hefur verið í mikilli sókn undanfarin ár og íþróttafélagið Breiðablik hefur að skipa eina stærstu knattspyrnudeild landsins. Tekin voru tvö djúpviðtöl, annars vegar við framkvæmdarstjóra félagsins og hins vegar við aðalþjálfara karlaliðsins í tilraun til að varpa ljósi á rekstur knattspyrnudeildarinnar og fá innsýn í umgjörð á heimaleikjum karlaliðs Breiðabliks. Rannsóknin inniheldur meðal annars nákvæma umfjöllun um markaðssetningu og þá sérstaklega hvernig henni er beitt í íþróttum. Að auki eru áhorfendur skoðaðir sem neytendur og þeim þáttum sem hvetja þá áfram, veita þeim ánægju og gera þá trygga, gerð skil.
Margir þættir geta haft áhrif á mætingu áhorfenda á íþróttaviðburði, en áhrif veðurfars, fyrri árangurs íþróttaliða og tímasetningar ásamt öðrum þáttum skipa stóran sess í ákvörðunartöku þeirra. Framkvæmd var línuleg aðhvarfsgreining (e. Ordinary least square regression) í þeim tilgangi að ákvarða þá þætti sem útskýra hegðun áhorfenda á heimaleikjum Breiðabliks. Rannsóknin grundvallast af 83 heimaleikjum sem Breiðablik háði á árunum 2008-2015. Niðurstöður sýna að fyrra gengi Breiðabliks og beinar útsendingar frá heimaleikjum liðsins hafa marktæk áhrif á áhorfendafjölda. Að lokinni rannsókn eru niðurstöður hennar bornar saman við markaðsstarf félagsins í því augnamiði að auka virði fyrir áhorfendur á heimaleikjum liðsins.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| B.Sc. Ritgerð - Arnþór og Hörður.pdf | 1,14 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |