Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/25792
Í greinargerð þessari er fjallað um gerð verkefnasafns í hljóðfæragerð fyrir hönnun og smíði á miðstig grunnskóla. Greinargerðin skiptist í fimm kafla en í þeim er fjallað um upphaf smíðakennslu á Íslandi, áherslur Aðalnámsskrár fyrir hönnun og smíði og kennsluaðferðir sem gætu hentað verkefnasafninu. Auk þessa verður drepið á upphaf hugmynda um uppeldismiðað handverk sem þátt í alþýðumenntun og kenningar John Deweys um verklegt nám. Að lokum er gerð grein fyrir gerð verkefnasafnsins og þeim hugmyndum sem hún grundvallast á. Með verkefnasafninu vill höfundur auðga námsframboð í hönnun og smíði fyrir nemendur á miðstigi grunnskóla. Við gerð þess var meðal annars haft í huga að það gæti aukið möguleika á samþættingu hönnunar og smíði við aðrar námsgreinar eins og sögu, landafræði og tónmennt.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Hljodfaeragerd_greinagerd_verkefnasafn.pdf | 2.18 MB | Open | Heildartexti | View/Open | |
2016_03_skemman_yfirlysing_lokaverkefni_29.03.16 (1).pdf | 107.08 kB | Locked | Yfirlýsing |