Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/25823
Í þessu verkefni er leitast við að finna leið til að efla félagslega einangraðar stúlkur til aukinnar þátttöku í samfélaginu. Verkefnið er tvískipt, skiptist annars vegar í fræðilega greinargerð og hins vegar útbjuggum við námskeið sem miðar að því að svara rannsóknarspurningu okkar. Námskeiðið er byggt á fræðilega hluta greinargerðarinnar en einnig nýttum við þá reynslu sem við höfum aflað okkur í gegnum námið í tómstunda- og félagsmálafræði. Námskeiðið ber heitið Verum vinkonur, ég og þú og er ætlað félagslega einangruðum stúlkum á aldrinum þrettán til sextán ára. Tómstunda- og félagsmálafræðingar, starfsfólk félagsmiðstöðva eða annað fagfólk á að geta nýtt sér afurð þessa verkefnis til námskeiðahalds fyrir þennan markhóp. Í greinargerðinni er almennt fjallað um félagsfælni og aðra þætti sem geta leitt til félagslegrar einangrunar, einnig er farið yfir unglingsárin, félagsmótun og sjálfsmynd. Í beinu framhaldi er svo farið yfir grunnþætti námskeiðsins; sjálfstraust, óformlegt nám, þægindasvæðið, ígrundandi nám, hópefli og vináttu. Áhersluþættir námskeiðsins eru að efla sjálfstraust, að þátttakendur styrkist í félagslegum samskiptum, læri að þekkja sjálfa sig og bæti sjálfsmynd sína. Námskeiðið er í heild sinni átta skipti. Hvert skipti er 80 mínútur í senn, tvisvar í viku í fjórar vikur. Virk þátttaka í öllum tímum spilar lykilhlutverk svo markmiðum námskeiðsins verði náð.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Námskeið-Handbók.pdf | 3.12 MB | Locked Until...2069/06/17 | Fylgiskjöl | ||
elva_Skemma yfirlýsing- Elva og Birta.pdf | 118.04 kB | Locked | Fylgiskjöl | ||
Lokaverkefni 2016.pdf | 620.79 kB | Locked Until...2069/06/17 | Greinargerð |