Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25845
Í þessari ritgerð verður fjallað um þjónustu við ung fötluð börn og fjölskyldur þeirra í Reykjavík og Kaupmannahöfn. Markmiðið með ritgerðinni var að kanna hvort þjónusta við fötluð börn væri hugsuð útfrá þörfum fjölskyldunnar. Því ákváðum við að kanna þjónustuna sem borgirnar veita fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra, útfrá gildandi lögum og alþjóðasamningum með áherslu á snemmtæka íhlutun og fjölskyldumiðaða þjónustu. Rannsóknarspurningarnar voru: Hvaða þjónusta er í boði fyrir ung fötluð börn og fjölskyldur þeirra miðað við gildandi lög, reglugerðir og alþjóðasáttmála? Er sú þjónusta fjölskyldumiðuð? Verkefnið er heimildaritgerð byggð á eigindlegri aðferðafræði, þar sem upplýsinga er aflað úr lögum, opinberum gögnum, fræðiritum og heimasíðum borganna. Niðurstöðurnar benda til þess að stefnur borganna í málefnum fatlaðra barna sé að mestu fjölskyldumiðuð. Foreldrum er veittur stuðningur og fagleg ráðgjöf ásamt því sem þjónustan er aðlöguð að barninu og fjölskyldu þess. Fatlað barn tilheyrir fjölskyldu og því ber að þjónusta fjölskylduna sem heild til þess að auka lífsgæði barnsins með framtíð þess í huga. Munurinn á þjónustunni á milli borganna liggur helst í dagvistunarformum. í Reykjavík ganga flest börn í almenna leikskóla án aðgreiningar á meðan boðið er uppá fjölbreytt dagvistunarform í Kaupmannahöfn sem geta ýtt undir aðgreiningu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð.pdf | 411.11 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
yfirlýsing.pdf | 233.21 kB | Lokaður | Yfirlýsing |