Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/25860
Samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla: Almennur hluti 2011 Greinasvið 2013, kafla um textílmennt, eiga nemendur á öllum aldursstigum í grunnskóla að læra efnisfræði þar sem farið er í hvað textílefnin heita, hverjir eiginleikar þeirra eru og í hvað þau eru notuð. Ekki er mikið um efni á íslensku tengt textílefnum og helst hefur reynst hægt að finna aðgengilegar upplýsingar um efnisfræðina í erlendum bókum. Þetta lokaverkefni á bakkalárstigi fólst í að búa til vef þar sem farið var yfir öll helstu textílefnin, sögu þeirra og eiginleika. Með því að tefla efninu fram á vef var reynt að höfða meira til nemenda og kennara í nútímasamfélagi auk þess sem umfjöllun um textílefnin öll saman á einum stað sparar kennurum og nemendum tíma, þar sem ekki þarf að leita í bókum og þýða flókin eða framandi orð yfir á íslensku. Í greinargerðinni sem fylgir vefnum er svo farið í tilgang með þessari námsefnisgerð, hvernig hún tengist kennslu, hvernig til tókst með efnisgerðina og hvernig mætti þróa hana frekar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
2016_03_skemman_yfirlysing_lokaverkefni_29.03.16 (2)-signed.pdf | 99.94 kB | Lokaður | Yfirlýsing | ||
Lokaverkefni - greinargerð.pdf | 5.49 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |