is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2601

Titill: 
  • Samdráttur í efnahagslífi Vesturlandanna: Áhrif á efnahag og velferð í Asíu
Titill: 
  • Economic downturn in the Western countries: Impact on economy and welfare in Asia
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi fjallar um þann samdrátt í efnahagslífi Vesturlanda sem varð í kjölfar fjármálakreppunnar sem hófst árið 2008. Þeim spurningum er varpað fram hvaða afleiðingar þessi samdráttur hefur á efnahag og velferð í Asíu og hvaða merkingu þetta gæti haft fyrir alþjóðaviðskipti.
    Til þess að komast að niðurstöðum voru skoðaðar rannsóknir og skýrslur ýmissa fræðimanna auk gagna frá hinum ýmsu þróunar- og efnahagsstofnunum. Niðurstöðurnar leiddu það í ljós að afleiðingar fjármálakreppunnar munu bitna verulega á útflutningsgeiranum í Asíu sem er einn af máttarstólpum asísks efnahagskerfis. Þetta mun ýta undir ýmis félagsleg vandamál sem nú þegar eru til staðar í Asíu. Mikil hætta er á verulegri lífskjaraskerðingu, en í Asíu má hennar einmitt síst við. Í kjölfar minni eftirspurnar á Vesturlöndunum og samdráttar í útflutningi frá Asíu má búast við einhverjum breytingum á viðskiptaháttum á milli Vesturlandanna og Asíu. Þessar breytingar munu þó ekki einskorðast við þessa tvo heimshluta sökum þess hve mikið vægi þeir hafa í heimshagkerfinu og því munu áhrifin mjög líklega teygja sig um allan heiminn og hafa að öllum líkindum áhrif á alþjóðaviðskipti.

Samþykkt: 
  • 12.5.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2601


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MAI_2_fixed.pdf1.54 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna