is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26051

Titill: 
  • „Svo miklu meira en bara skólaleikrit” : upplifun unglinga af þátttöku sinni í Skrekk, hæfileikakeppni grunnskóla í Reykjavík
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þetta verkefni er lokaritgerð til BA-prófs í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Verkefnið er rannsóknarskýrsla um upplifun unglinga af þátttöku sinni í Skrekk, hæfileikakeppni grunnskóla í Reykjavík. Í skýrslunni er að finna fræðilega umfjöllun um unglingsárin, þar sem einkum er fjallað um þroska unglinga út frá kenningum Erikson og Piaget. Einnig er fjallað um kenningar og rannsóknir á sviði mismunandi lista, viðburða, hópa og óformlegs náms. Leitast er við að fá innsýn í upplifun unglingsins af þátttöku hans í Skrekk, skilja mikilvægi viðburðarins fyrir unglinginn og sjá viðburðinn með augum hans. Notast var við eigindlega rannsókn þar sem tekin voru fjögur hálfopin einstaklingsviðtöl við unglinga sem allir hafa tekið þátt í Skrekk einu sinni eða oftar. Rýnt var í viðtölin og þau greind niður í þemu sem voru m.a. mikilvægi Skrekks, tækifæri og reynslunám. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að unglingar sem taka þátt í Skrekk upplifa viðburðinn á jákvæðan hátt.
    Unglingar, hópastarf, viðburður, Skrekkur, reynslunám, óformlegt nám, sviðslist.

Samþykkt: 
  • 9.9.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/26051


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Svo-miklu-meira-en-bara-sk_laleikrit-lokahandrit-10mai.pdf946.51 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
2016_03_skemman_yfirlysing_lokaverkefni_29.03.16 Rétt.pdf37.7 kBLokaðurYfirlýsingPDF