Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26189
Megintilgangur þessarar rannsóknar var að gera markaðsáætlun fyrir Glacier Journey, hér verður í stuttu máli greint frá hugtökum og aðferðum sem beitt var við gerð hennar. Niðurstöður verða kynntar og hvernig þær eru túlkaðar.
Markaðsáætlunin inniheldur níu aðskilda kafla og farið er í fræðileg hugtök og þær greiningar sem notaðar eru í áætluninni, svo sem SVÓT, fimm krafta líkan Porters og PESTLE. Farið er yfir tilurð og sögu Glacier Journey, greining var gerð á innri og ytri þáttum fyrirtækisins sem og markaðurinn, markaðsaðstæður fyrirtækisins voru skilgreindar. Megindleg rannsókn var gerð til þess að skilgreina markhóp Glacier Journey og hvernig væri best að ná í hann.
Með niðurstöður rannsóknarinnar til hliðsjónar gerði höfundur framkvæmda- og fjárhagsáætlun fyrir Glacier Journey til þriggja ára og tekur hún gildi í september 2016.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
GuðrúnArnaKristjánsdóttir_BS_lokaverk.pdf | 18.67 MB | Lokaður til...01.07.2026 | Heildartexti | ||
Efnisyfirlit.pdf | 432.88 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna |