is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/26237

Titill: 
  • Notkun upplýsingatækni í kennslu : viðhorf og nýting kennara á upplýsingatækni í kennslu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessarar ritgerðar er notkun samskipta og upplýsingatækni í
    íslenskukennslu í grunnskólum á Íslandi. Leitast er við að finna svör við
    því að hvaða marki kennarar telja að rafræn námsgögn hafi breytt og/eða
    bætt íslenskukennslu, að hvaða leyti íslenskukennurum finnist að almenn
    notkun nemenda á tækni kalli á breytingar í kennslu og hvernig notkun
    upplýsingatækni í íslenskutímum er háttað. Þegar við vorum í vettvangsnámi
    og sáum hversu mikið kennarar notuðu ipada og tölvur til að ná til nemenda
    vaknaði hjá okkur áhugi á því að vita meira um tækninotkun í kennslu og
    hvort og hvernig kennarar flétta tæknina inn í almenna kennslu hjá sér.
    Við fengum að nota hluta af gögnunum úr rannsóknarverkefninu Íslenska sem
    námsgrein og kennslutunga sem er samstarfsverkefni Háskóla Íslands og
    Háskólans á Akureyri og fjallar meðal annars um notkun upplýsingatækni í
    grunnskólum, þ.e. viðtöl við tíu íslenskukennara í grunnskólum og u.þ.b.
    120 vettvangslýsingar úr kennslustundum. Í ritgerðinni er farið yfir þann
    fræðilega bakgrunn sem fyrir liggur um almenna notkun upplýsingatækni í
    kennslu, skoðaðar ýmsar rannsóknir sem tengjast efninu og dregin saman
    svör við rannsóknarspurningunum. Niðurstöðurnar eru settar í samhengi við
    rannsóknir sem gerðar hafa verið um samspil upplýsingatækni og kennslu og
    hvernig nýta megi upplýsingatækni til að vekja áhuga nemenda. Meðal þess
    sem fram kemur er að kennararnir voru almennt sammála um að það væri
    jákvætt að blanda upplýsingatækni mun meira inn í íslenskukennsluna en nú
    er gert.

Samþykkt: 
  • 14.10.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/26237


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
RENT_PRTSPOOLER_QLC03176_Akranes_3359_001.pdf428,64 kBLokaðurYfirlýsingPDF
Notkun-upplýsingatækni-í-kennslu-Heiðdís-og-Lilja.pdf546,76 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna