Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/26336
Sjálfskaði er vandamál sem má finna víða á heimsvísu. Sjálfskaði felur í sér að einstaklingur vísvitandi skaðar líkama sinn án tilhneigingar til sjálfsvígs. Atferlið gefur til kynna mikla innri vanlíðan einstaklinga og þá oftast meðal ungmenna. Í þessari rannsókn er sjálfskaða á Íslandi skoðaður í því skyni að varpa ljósi á mikilvægi fræðslu og vitneskju um þennan tilgreinda vanda. Í rannsókninni er leitast eftir svörum við spurningunum er sjálfskaði fíkn og hvaða áhrif hefur sjálfskaði á ungmenni á Íslandi? Hver er helsta upplifun fagfólks meðferðarstofnanna á sjálfskaða? Tekin voru viðtöl við sjö einstaklinga. Þrír af þeim höfðu skaðað sjálfan sig í meira en sex mánuði í senn og fjórir einstaklingar sem starfa á meðferðastofnun sem unnið hafa með einstaklinga sem skaða hafa sjálfan sig. Helstu niðurstöður ransóknarinnar gefa til kynna að sjálfskaði er persónubundin aðferð einstaklinga til að losa um innri vanlíðan eða áreiti sem þeir upplifa og því getur meðferð við sjálfskaða og að komast að rót vandans reynst snúið. Sjálfskaða er að finna á Íslandi og atferli hans hefur fíkni tengd einkenni. Hann er tjáning mikilli innri vanlíðan og skortur er á fræðslu á þessu sviði bæði innan heilbrigðisgeirans og í samfélaginu.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
2016_03_skemman_yfirlysing_lokaverkefni_29.03.16.pdf | 392.97 kB | Locked | Yfirlýsing | ||
mín leið til að lifa af.pdf | 845.26 kB | Open | Heildartexti | View/Open |