Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/26368
Byggingarframkvæmdir drógust verulega saman strax eftir hrun bankanna í október 2008. Atvinnulausir, eða atvinnulitlir íslenskir iðnaðarmenn, leituðu í talsverðu mæli til Noregs enda skortur á iðnaðarmönnum þar. Íslendingar hafa reynst eftirsóttir af verktökum í Noregi sem bendir til þess að framleiðni þeirra sé síst slakari en framleiðni kollega þeirra í Noregi. Í þessu erindi leitumst við við að bera saman framleiðni iðnaðarmanna í byggingariðnaði á Íslandi og í Noregi. Horft er á magntölur, það er, hve margar vinnustundir eru á bak við hvern fermeter við byggingu fjölbýlishúss í þessum tveimur löndum. Eftir skoðun gagna og útreikninga kemur í ljós að árangur Norðmanna er töluvert betri en okkar. Stuðst var við gögn frá verktökum, ásamt opinber gögn bæði frá Noregi og Íslandi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
HAG_Ævar_Þórólfur.pdf | 415.73 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |