Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/26396
Markmið þessarar rannsóknar er að þýða og forprófa alþjóðlega matstækið InterRAI family carer needs assessment eða „Mat á þörfum óformlegra umönnunaraðila í heimahúsum“. Rannsókn þessi er fyrsti liður í forprófun á matstækinu sem var lagt fyrir 20 umönnunaraðila aldraðra í heimahúsum. Niðurstöður forprófunar byggja á því hvernig gekk að meta vellíðan og stöðu umönnunaraðila með tækinu og var ætlað að gefa vísbendingar um þær úrbætur sem gera þyrfti á matstækinu fyrir frekari notkun. Þörf er á því að forprófa matstækið með tilliti til próffræðilegra eiginleika á stærra úrtaki. Einnig var unnið úr þeim 20 fyrirlögnum sem framkvæmdar voru og þær niðurstöður notaðar til að svara rannsóknarspurningum. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð og voru niðurstöður settar fram með lýsandi tölfræði. Úrtak var fengið með aðstoð Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og snjólboltaúrtaks.
Niðurstöður rannsóknar skiptast í tvennt. Forprófun matstækis á þörfum óformlegra umönnunaraðila í heimahúsum gekk vel og gefur tækið góða yfirsýn yfir heilsu, vellíðan og virkni umönnunaraðila. Matstækið þarfnast þó málfræðilegrar yfirferðar og eins er þörf á að endurþýða og staðfæra upp á nýtt ýmis hugtök sem vísa til þjónustuþátta sem standa öldruðum og aðstandendum þeirra til boða hér á landi.
Niðurstöður úr tölfræðilegri úrvinnslu bentu til þess að þátttakendur upplifðu flestir álag tengdri þeirri umönnun sem þeir veittu og tæplega helmingur fann fyrir einhverjum einkennum þunglyndis og kvíða. Algengustu áskoranir þátttakenda voru að takast á við vanda sem tengdist andlegri heilsu þess aldraða svo sem þunglyndi eða kvíða. Þá átti rúmlega helmingur þátttakenda erfitt með að sinna persónulegum athöfnum daglegs lífs (PADL). Stór hluti þátttakenda taldi þörf fyrir aukna formlega þjónustu svo sem aukna heimaþjónustu, heimahjúkrun, dagvistun og hvíldarinnlagnir.
Lykilorð: Félagsráðgjöf, Öldrunarfræði, Öldrunarfélagsráðgjöf, Matstæki, InterRAI, Forprófun, Umönnunaraðilar.
The objective of this research is to translate and pretest the international assessment instrument InterRAI family carer needs assessment. This research is the first step in pretesting this assessment instrument which was presented to 20 informal caregivers in private homes. The results of the pretesting are based on how well-being and status of the caregivers was assessed with the instrument and are intended to indicate the improvements that need to be done on the instrument for further use. It is essential to pretest the assessment instrument with regards to examination properties on a bigger sample group. Furthermore, the data of 20 assessments that were performed were analyzed and those results used to answer the research questions. A quantitative research method was used and the results were presented with descriptive statistics. The sample group was determined with help of the Department of Welfare of the city of Reykjavík and with snowball sampling.
The results of the research are twofold. The pretesting of the assessment instrument on the needs of informal caregivers in private homes was successful and the instrument gives good insight into health, well-being and activity of the caregivers. The instrument needs a linguistic readjustment and it is also necessary to translate and adapt again some new concepts to the locality that refer to service factors that are offered here to the elderly and their families.
The results from the statistical data indicate that most participants experience stress related to their care-giving work and half of them experienced some symptoms of depression and anxiety. The most common challenges that the participants faced was related to the mental health of the elderly person, such as depression and anxiety. Furthermore, half of the participants had difficulties with personal activities of daily living. A large part of the participants thought that formal services needed to be increased, like home care, home nursing, adult daycare or dayservice and respite care hospitalizations.
Keywords: Social Work, Gerontology, Gerontological Social Work, Assessment Equipment, InterRAI, Pretesting, Caregivers.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Doc 22 Nov 2016, 09-45.pdf | 297,48 kB | Lokaður | Yfirlýsing | ||
Lovísa Jónsdóttir.pdf | 6,66 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |