Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/26439
Þessi ritgerð fjallar um samanburð á ljósgjöfum sem eru í jarðgöngum, þ.e.a.s. samanburð á ljóstvistum og háþrýsti- og lágþrýstiperum. Verkefnið var unnið í samstarfi við verkfræðistofuna EFLU. Farið var yfir hvort ljóstvistar væru hagkvæmur fjárfestingarkostur í jarðgöng
stofn- og rekstrarlega séð út frá Vaðlaheiðargöngum og Norðfjarðargöngum.
Notast var við hönnunartölur frá EFLU í Vaðlaheiðargöngum í samanburði, en höfundur notaðist við útboðsgögn fyrir Norðfjarðargöng til að hanna daglýsingu og almenna lýsingu í þau göng með hjálp lýsingarhugbúnaðarins
Relux Tunnel.
Skoðaðar voru handbækur og reglugerðir við gerð verkefnisins.
Jafnframt var skoðuð ljósastýring og sjálfvirk vöktun á lýsingu í jarðgöngum og einnig var farið í neyðarlýsingu og varaafl.
Notast var við Relux og Relux tunnel til hönnunar á lýsingu í Norðfjarðargöng.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni.pdf | 2.83 MB | Open | Complete Text | View/Open |