en English is Íslenska

Thesis (Master's)

University of Iceland > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/26586

Title: 
  • Title is in Icelandic Persónulegt og pólitískt: Kynjapólitík og hversdagsleiki á þremur lögmannsstofum
Degree: 
  • Master's
Keywords: 
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Þessi ritgerð byggir á gögnum úr þátttökurannsókn á þremur lögmannsstofum. Einni með konur í miklum meirihluta, annarri með karla í miklum meirihluta og þriðju með nokkuð jafnt kynjahlutfall. Markmiðið var að sjá hvernig persónuleg pólitík mótaði vinnustaðamenningu og vinnustaðasamskipti, greina valdajafnvægið og skoða áhrif og afleiðingar þess. Kyn og kyngervi var í forgrunni og ætlunin var að greina hvernig þetta hefði áhrif á persónulegt vald einstaklinga. Samfélagslegar reglur um „rétta“ framsetningu kyngervis eru strangar og konur mæta oft neikvæðum viðhorfum þegar þær fara á svig við þessar reglur og hasla sér völl í atvinnulífinu. Auk þess búa þær við strangar reglur hvað líkama og útlit varðar. Konur í valdastöðum njóta almennt minni trúverðugleika en karlar vegna kyns og eiga oft erfiðara með að mynda tengslanet sem aftur skaðar trúverðugleikann. Kyngervisreglur sníða körlum líka þröngan stakk. Karlar geta til dæmis síður leyft sér að vera persónulegir og viðkvæmir í samskiptum. Niðurstöðurnar voru þær að bæði kyn virtust njóta góðs af því að kynjahlutfall á vinnustaðnum væri frekar jafnt. Þannig var andrúmsloft og vinnustaðamenning afslappaðri. Kvenlögmennirnir virtust njóta góðs af nærveru karlalögmanna hvað almennan trúverðugleika varðaði, þar sem kyngervisreglur kvenna voru ekki jafn harkalega brotnar þegar kynin unnu saman. Þá þuftu konurnar ekki að setja sér jafn strangar reglur að mörgu leyti. Karlarnir gátu svo verið persónulegri í samskiptum vegna nærveru kvenlögmannanna.

Accepted: 
  • Jan 11, 2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/26586


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Katrín Johnson nytt.pdf1.1 MBOpenHeildartextiPDFView/Open
anonym1258_doc02739020170111125031.pdf286.82 kBLockedYfirlýsingPDF