Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/26730
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvaða áhrif auglýsingar sem staðsettar væru á aðskilnaðarhyrnum hefðu á sölu varanna sem auglýstar eru á þeim. Rannsóknin var unnin í samstarfi við verslunarkeðju á tímabilinu 21. september - 2. nóvember 2016. Rannsóknin var sett upp með A-B-A vendisniði þar sem bókstafurinn A táknar grunnskeið og bókstafurinn B táknar íhlutunarskeið. Á íhlutunarskeiðinu voru aðskilnaðarhyrnur með vörumerki og mynd af vöru skipt út fyrir þær hyrnur sem voru fyrir í versluninni þar sem rannsóknin var framkvæmd. Tímalengd hvers skeiðs, grunn- og íhlutunarskeiðs, var 14 dagar. Við greiningu gagna var notast við lýsandi tölfræði.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að auglýsingar á aðskilnaðarhyrnum hafa ekki marktæk áhrif á sölu vörunnar sem auglýst var en þrátt fyrir að munurinn hafi ekki verið marktækur að þá jókst söluhlutfall vörunnar af heildarvöruflokkinum á milli skeiða.
Niðurstaða rannsóknarinnar sýndi einnig fram á að marktækur munur var á sölutölum vöruflokksins í heild sinni.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Hafa_skiljurnar_áhrif.pdf | 1.23 MB | Open | Heildartexti | View/Open |