Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/26734
Útdráttur
Ritgerðin rannsakar samband karnivalsins í Gleðigöngunni við réttindabaráttu hinsegin fólks.
Rakin er saga réttindabaráttu samkynhneigðra á Íslandi frá stríðsárum og fram til dagsins í
dag. Í þeirri sögu er athyglinni beint að því hvernig samkynhneigðir notuðu sýnileikann til að
koma baráttumálum sínum á framfæri í gegnum árin. Til að byrja með var sýnileikanum beitt
með það að markmiði að fá viðurkenningu á tilvist samkynhneigðra einstaklinga í
samfélaginu. Eftir að þeim áfanga hafði verið náð hófst baráttan fyrir réttindum þeirra til
jafns á við aðra í samfélaginu, og var sýnileikinn áfram notaður í þeirri baráttu. Sagt er frá
stofnun Samtakanna ‘78 og helstu áföngum sem náðust í réttindamálum árin eftir að
samtökin voru stofnuð. Fjallað er um stofnun réttindasamtaka samkynhneigðra á
Norðurlöndunum og í Bandaríkjunum, auk þess sem sagt er frá fyrstu Gay-Pride göngunum
sem haldnar voru í þessum löndum. Enn fremur eru kynntar tvær alþjóðlegar göngur
hinsegin fólks, en það eru göngurnar Euro-Pride og Inter-Pride. Sagt er frá aðdragandanum
að fyrstu Gleðigöngunni á Íslandi sem haldin var árið 2000 og viðbrögðum almennings við
henni. Meginumfjöllunarefni ritgerðarinnar, karnivalið í Gleðigöngunni og sýnileikinn sem því
fylgir, er greint út frá þremur meginsjónarhornum: formgerð göngunnar, útliti hennar og
umfjöllun fjölmiðla um gönguna. Þessi þríþætta greining er svo sett í samhengi við sýnileika
og réttindabaráttu samkynhneigðra og með því móti reynt að grafast fyrir um hver þáttur
göngunnar hefur verið í réttindabaráttunni frá því hún var fyrst haldin.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Gleðigangan BA.pdf | 1,85 MB | Open | Heildartexti | View/Open | |
yfirlýsing.PDF | 205,94 kB | Locked | Yfirlýsing |