Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/26849
Þessi skýrsla er hluti af BSc verkefni í Tölvunarfræði/Hugbúnaðarverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Verkefnið var unnið í samstarfi við Rue de net.
Í þessu verkefni var útfært gagnagrunn, vefþjónustu, vefsíðu og Windows 10.
Forritin eru ætluð fyrir áætlunargerðir og útreikningur þeirra byggir á Successive Principle aðferðafræði Steen Lichtenberg.
SSE aðferðafræðina má nýta í áætlanir af ýmsum gerðum s.s. tímaætlanir, kostnaðar-áætlanir o.s.frv.
Þegar áætlun er gerð með SSE er hún brotin niður í verkliði sem svo eru áætlaðir. Verkliðir eru áætlaðir út frá þremur gildum sem eru hámarks, lágmarks og líklegasta gildið. Út frá þeim er svo óvissan í hverjum verklið reiknuð.
Ef verkliður þykir of umfangsmikill eða óvissan þykir of há, þá er hægt að brjóta hann niður í smærri einingar og skipta upp í yfirlið og undirliði.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
SteenSuccessiveEstimationFinal2016.pdf | 1,97 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
SSEDeveloperManual.pdf | 316,09 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna |