Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/26875
Spurningakannanir um framlag eldri borgara til samfélagsins voru lagðar fyrir úrtak eldri borgara árin 2006 og 2016. Bæði árin var úrtakið 1200 einstaklingar á aldrinum 67 – 85 ára og svöruðu 59% þeirra árið 2016 en 64% árið 2006. Gallup sá um framkvæmd beggja kannananna og var gagna aflað með því að hringja í þátttakendur.
Meðalaldur þátttakenda árið 2016 var 74,4 ár en árið 2006 var hann 75,2 ár. Svipaður fjöldi karla og kvenna tók þátt í báðum könnununum.
Aðspurðir um heilsufar sitt mátu ríflega 79% þátttakenda þaðmjög eða frekar gott miðað við aldurárið 2016 en 77% svöruðu þannig árið 2006.Hærra hlutfall karla en kvenna taldi heilsufar sitt frekar eða mjög gott í báðum könnunum.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
framlag_eldir_borgar_-_samanburdur_2006_og_2016.pdf | 784.99 kB | Open | Heildartexti | View/Open |