is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/26935

Titill: 
  • Afglæpavæðing vímuefnaneyslu : „Ekki refsingu heldur hjálp”
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Umræður um breytingar á stefnu vímuefnamála á Íslandi hafa farið hátt síðustu ár. Markmið þessarar ritgerðar er að skoða kosti og galla afglæpavæðingar á vímuefnaneyslu og skoða hvernig refsilögin eru í dag og mögulegar umbætur á þeim. Í dag eru 15 ár síðan vímuefni voru afglæpavædd í Portúgal og verður skoðað hvernig þar hefur tekist til og hvort vert sé að gera slíkt hið sama á Íslandi. Nokkuð hefur verið rætt um þetta málefni á Alþingi og þar fara hæst þingmenn Pírata ásamt heilbrigðisráðherra, Kristjáni Þór Júlíussyni. Orðræðugreining var gerð á umræðum Alþingis og niðurstöður hennar voru að almennt voru þingmenn sammála um að refsingar fyrir neyslu vímuefna henti ekki að öllu leyti. Eitthvað þarf að gera til að breyta þeirri aukningu sem orðið hefur á neyslubrotum, en þeim fjölgaði úr 883 brotum árið 2009 í 1.725 brot árið 2013. Fara þarf mannúðlegri leiðir og veita aðstoð í stað þess að refsa, hvort sem neytandinn er ungur einstaklingur eða fíkill til margra ára. Taka þarf upp fleiri meðferðarúrræði og fræðslu sem byggir á skaðaminnkun. Einnig þarf að efla forvarnir til muna. Þetta kom fram bæði í umræðum á Alþingi og frá starfshópi heilbrigðisráðherra sem vann skýrslu um umbætur á stefnu vímuefnamála á Íslandi.
    Lykilhugtök: Afglæpavæðing, vímuefni, kannabis, skaðaminnkun, Portúgal, orðræðugreining.

  • Útdráttur er á ensku

    Discussions about changes in the drug policy in Iceland have been loud in past years. The aim of this thesis is to look at pros and cons of decriminalization on drugs and see how the criminal laws of Iceland are today and how they could be changed for the better. 15 years have passed since drugs were decriminalized in Portugal and this thesis will look into the possibility of doing the same in Iceland. This subject has been discussed at the Parliament and has it been the parliamentarians of the Pirate Party and the Minister of Health, Kristján Þór Júlíusson, which have kept the discussion going. Discourse analysis was done on the discussions at the Parliament and the results were mainly that the members of Parliament agree on the fact that something needs be done to change the punishments for drug use. The crime rate for drug use has gone from 883 violations in 2009 to 1.725 violations in 2013. Humane actions need to be taken instead of punishment, no matter if the user is a youngster or an addict. More rehabilitation and treatment options have to be available as well as education about harm reduction. Better prevention measures need to be taken. This has been put forward in discussions by the Parliament and by a group put together by the Minister of Health that prepared a report on the reform of drug policy in Iceland.
    Keywords: Decriminalization, drugs, cannabis, harm reduction, Portugal, discourse analysis.

Samþykkt: 
  • 20.3.2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/26935


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA verkefni Lísbet Grönvaldt.pdf420.49 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna