Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/27094
Ritgerð þessi mun skoða hvernig það kom til að konur urðu prestar innan þjóðkirkju Íslands. Markmið hennar er annars vegar að varpa ljósi á hvaða forsendur búa þar að baki og hins vegar að skoða hvernig sú þróun átti sér stað. Í upphafi verður augum beint að hinu alþjóðlega samhengi þar sem áherslan liggur á kvennabaráttu, kristna femíniska guðfræði og áhrif þessara þátta á kirkjuna. Samhliða þessu verða biblíurannsóknir skoðaðar og hvaða áhrif þær höfðu á femíniska guðfræðinga og baráttu þeirra um miðja 20. öldina. Því næst verður þróunin skoðuð í íslensku samhengi, frá því að konur öðlast lagalega heimild til embættisgengis, hvernig þróunin var á Norðurlöndum, hvaða gerjun var um guðfræðileg álitamál innan þjóðkirkjunnar og hvaða viðbrögð verða í kjölfar þess að fyrsta konan er vígð á Íslandi. Í framhaldi þessa komast mál í kastljósið sem áður fyrr höfðu ekki öðlast hljómgrunn. Má þar nefna jafnréttismál og setur þjóðkirkjan sér fasta stefnu í slíkum málum eftir að konur vígjast.
Eins og ritgerðin ber með sér hefur sagan um jafnrétti innan veggja kirkjunnar og út í samfélaginu verið löng og erfið. Þó svo að málum hafi þokast vel áfram á 21. öldinni er mikil vinna í að viðhalda þeim sigrum sem náðst hafa. Ritgerð þessi er því ekki síður hvatning um að halda þessum markmiðum á lofti og áminning um að ekki megi slá slöku við í jafnréttisbaráttunni.
The purpose of this thesis is to examine how women became pastors within the Evangelical Lutheran Church of Iceland. First, a light will be shed on the prerequisites that are behind the event and second, how that process occurred. Initially the focus will be on the international context, especially the women´s rights movement, Christian feminist theology and its impact on the Church. Furthermore, bible texts will be examined and the impact they had on female theologians and their struggle in the middle of the 20th century. Next, the development will be explored within the context of Iceland, when women gained legal permission to be ordained, how that process occurred in Scandinavia, what discussion was ongoing about theological issues within the Evangelical Lutheran Church of Iceland and what reaction followed after the first women was ordained in Iceland. Finally, matters get attention which in the past had not gained support, such as gender equality as the Evangelical Lutheran Church of Iceland sets itself a permanent policy in such matters after women gained ordination.
The story for equality within the walls of society and Church has been long and difficult, as this thesis is a prime example of. Although matters have progressed in the right direction in the 21st century there is still a lot of work in maintaining what has been achieved. Therefore, this essay serves as encouragement to recall these goals and to prevent decline in the struggle for gender equality.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Þið eruð öll eitt í Kristi Jesú.pdf | 1.24 MB | Lokaður til...05.09.2051 | Heildartexti | ||
Skemman_2017.pdf | 16.96 kB | Lokaður | Yfirlýsing |