Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/27141
Ritgerð þessi fjallar um hvernig kirkjan geti nálgast þann raunveruleika sem ofbeldi er í samfélagi okkar. Framkvæmdaáætlun íslensku þjóðkirkjunnar gegn ofbeldi er rakin og bent er á helstu leiðir, jafnt þær sem komnar eru til framkvæmda sem og aðrar sem enn bíða. Helstu leiðir kirkjunnar eru í gegnum stjórnsýslu, helgihald, predikun, sálgæslu og biblíutexta. Í ljósi þess að algengara er að konur séu þolendur ofbeldis er sérstaklega horft til framlags femínískrar guðfræði á síðustu áratugum. Gagnrýni femínískrar guðfræði á feðraveldi er skoðuð og áhrif hennar könnuð með tilliti til ofbeldis gegn konum. Að lokum er kynnt aðferð sem Anna Carter Florence hefur notað við kennslu í predikunarfræðum. Florence hefur þróað aðferð sem byggist á lestri ofbeldisfullra texta Gamla testamentisins og predikarar geta tileinkað sér til að auka meðlíðan með þolendum ofbeldis. Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að hafa opnar umræður um ofbeldi innan kirkjunnar en það styður jafnframt við framkvæmdaáætlun íslensku þjóðkirkjunnar. Florence bendir á mikilvægi bókar Phyllis Trible, Texts of Terror sem rýnir í fjórar sögur Gamla testamentisins sem allar fjalla um ofbeldi gegn konum. Í þessari ritgerð eru sögurnar skoðaðar út frá valdníðslu feðraveldsins og hvernig þær eiga sér hliðstæður í samfélaginu okkar í dag. Leitað er að Guði í sögunum bæði með aðferð Trible en eins með sýn Florence á nærveru Guðs í þjáningu.
Lykilorð: Framkvæmdaáætlun kirkjunnar, ofbeldi, femínísk guðfræði, predikun, þjáning, meðlíðan.
The focus of this thesis is how the church can respond to the reality of violence in our society. The Action Plan for the Evangelical Lutherian Church of Iceland (ELCI) against violence is outlined, the main strategies pointed out, both the ones that have already been implemented and the ones that haven’t. The most important approaches available to the church are through administration, liturgical practices, preaching, counceling, and biblical texts. Because women are more frequently the victims of violence, feminist theology has played a crucial role in the consciousness-raising taking place during the past decades. The feminist criticism of the patriarchy is highlighted, and the influence it has had regarding the resistance against violence against women. Finally, a method used by Anna Carter Florence in teaching preaching, is introduced. Florence has developed a method preachers can use to raise compassion through reading texts of violence from the Old Testament. Her emphasis on open discussion about violence within the church, corresponds to the Action Plan of the ELCI. Florence points out the importance of Phyllis Trible’s book, Texts of Terror, focusing on four stories from the Old Testament that all deal with violence against women. These stories are discussed in this thesis, as examples of patriarchy’s abuse of power, and how they echo our experiences of violence against women today. The question of God in those stories is raised with the focus on God´s loving presence with suffering people.
Keywords: Action plan for the churches, violence, feminist theology, preaching, suffering, compassion.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
KirkjanGegnOfbeldiSkemman.pdf | 589,74 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
YfirlýsingSkemman.jpg | 48,92 kB | Lokaður | Yfirlýsing | JPG |