Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/27221
Markmið ritgerðarinnar er að svara spurningunni, hvernig hafa samfélagslegar breytingar haft áhrif á breytt viðhorf Íslendinga til trúar og Þjóðkirkjunnar? Trúmál eru rótgróin í bæði menningarlegri og pólitískri sögu Íslands. Síðustu tvo áratugi hefur staða íslensku Þjóðkirkjunnar veikst í samfélaginu, sjá má á könnunum fækkun þeirra sem skilgreina sig sem trúaða og í aukinni skráningu úr Þjóðkirkjunni. Í ritgerðinni verða skoðaðir þættir og breytingar innan samfélagsins sem hafa haft áhrif á þessa þróun.
Ritgerðin er samsett úr fjórum megin köflum. Farið er yfir fræðilegan bakgrunn mannfræðinnar er kemur að kenningum um trúarbrögð í fyrsta kafla. Skoðuð er saga þjóðtrúar og pólitísk samhengi hennar í öðrum kafla, það er hvernig trú Íslendinga var í langan tíma tengd veraldarlegu valdi. Í þriðja kafla er fjallað um vestræna hugmyndafræði með því að skoða hugmyndir um hnattvæðingu, fjölmenningu, veraldarhyggju og trúfrelsi sem og áhrif upplýsingaaldarinnar. Í síðasta meginkaflanum verður farið yfir áhrif og gildi kirkjunnar, vald hennar yfir ríkjandi hugmyndafræði og gildi hennar í íslensku samfélagi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA- ritgerð, Glatað gildi kirkjunnar, Elva Björt Stefánsdóttir 2017.pdf | 482 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing.pdf | 241,46 kB | Lokaður | Yfirlýsing |