is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/27248

Titill: 
  • Nýliðar í ferðaþjónustufyrirtækjum. Nýliðamóttaka og þjálfun í íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvernig upplifun og viðhorf starfsmanna í íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum er af móttöku og þjálfun. Rannsókn þessi er byggð á eigindlegri aðferðafræði þar sem stuðst er við fyrirbærafræðilega nálgun. Skoðuð voru fjögur fyrirtæki innan íslenskrar ferðaþjónustu. Tekin voru sex viðtöl, þrjú viðtöl við starfsmenn í mannauðsdeildum eða starfsmannadeildum og þrjú viðtöl við starfsmenn í framlínu.
    Fræðilegur bakgrunnur var einkum sóttur til rannsókna í mannauðsstjórnun og fræðirita um móttöku og þjálfun starfsmanna. Sérstök áhersla var lögð á að skoða starfsánægju í fyrirtækjunum.
    Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að að móttöka og þjálfun sé almennt í góðum farvegi innan ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi. Viðmælendur töldu að móttaka og þjálfun hefði áhrif á starfsánægju að undanskyldum einum viðmælanda. Fyrirtæki sem höfðu stækkað mikið á síðastliðnum árum höfðu bætt verulega móttöku og þálfun starfsmanna.

Samþykkt: 
  • 9.5.2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/27248


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Skemma yfirlýsing-pdf.pdf178.96 kBLokaðurYfirlýsingPDF
Ragnar-Týr-Lokaskil1.pdf669.42 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna