is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/27290

Titill: 
  • Stefnumótun Vörumerkingar ehf
  • Titill er á ensku Exploring the strategy of Vörumerking ehf
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Rannsóknarspurning lokaverkefnisins er: Hver er stefna Vörumerkingar ehf og hvernig gæti hún orðið?
    Í þessari ritgerð er rýnt í stefnu fyrir fyrirtækið Vörumerking ehf. Starfsemi þess er prentsmiðja sem þjónar stórum hóp viðskiptavina, mörg stærstu fyrirtæki landsins eru í viðskiptum við Vörumerkingu ehf. Fyrst er farið yfir sögu Vörumerkingar ehf, síðan kemur fræðileg umfjöllun. Þar munu verða viðurkenndar aðferðir innan viðskiptafræðinnar er varða viðfangsefnið kynntar og settar fram. Vörumerking ehf er rótgróið fyrirtæki sem á sér langa sögu og það er eitt af leiðandi fyrirtækjum í umbúðaframleiðslu á Íslandi. Styrkur Vörumerkingar ehf er meðal annars mikil reynsla starfsfólks og einnig hafa sumir viðskiptavinir verið þar í viðskiptum í marga áratugi og það hefur stuðlað að framþróun og vexti fyrirtækisins. Vörumerking ehf hefur í gegnum tíðina áunnið sér gott orðspor á markaðnum fyrir gæðavöru og góða þjónustu.
    Með þær upplýsingar er varða ofangreinda þætti sem og ásamt fræðilegri nálgun á viðfangsefnið þá er lagt upp með tillögur að breytingum er varðar stefnu og ákveðna þætti starfseminnar. Í tengslum við þá stefnu er skipurit þess lagt fram. Farið er yfir valin fræðileg líkön með hliðsjón og sýn af rekstri Vörumerkingar ehf. Þar má nefna SWOT, PESTEL, PORTERS og ANSOFF en öll munu þau nýtast vel í að rýna í þá stefnumótunarvinnu í ritgerðinni. Ógnanir og tækifæri í SVÓT- líkani, ásamt PESTEL og PORTERS líkönunum snúa að ytra umhverfi og áhrifavöldum innan þess. Fjölmargir þættir í ytra umhverfinu hafa áhrif á fyrirtæki í rekstri þeirra. Slíkir þættir eru birgjar, viðskiptavinir og samkeppnisaðilar en ýmislegt fleira kemur þar líka til. Staða fyrirtækisins er kortlögð og sett fram með aðstoð þeirra líkana sem hér hafa verið komið fram. Út frá þeim greiningum er rýnt í hvernig málum er hagað út frá sjónarhóli stefnumótunar. Í lokakafla ritgerðarinnar er farið yfir alla þá þætti og settar fram tillögur og áherslubreytinga sem nýta má til breytinga á stefnunni og með þeim hætti að stuðla með því að raunhæf markmið náist. Í þeim kafla kemur skýrt fram að þrátt fyrir að Vörumerking ehf sé vel rekið fyrirtæki þá ber nokkur merki þess að hafa lítið notið fræðilegrar stefnumótunar hingað til. Með skýrari stefnu leggur Vörumerking ehf grunninn að betri rekstri sem á að birtast með aukningu viðskiptavina, tekju- og framlegðaraukningu og betri afkomu.

Samþykkt: 
  • 9.5.2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/27290


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS_Stefnumótun_Vörumerkingar_Kolbeinn.pdf1,14 MBLokaður til...01.01.2028HeildartextiPDF
kolbeinn.pdf559,88 kBLokaðurYfirlýsingPDF