Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/27323
Frá húsmóður til stjórnmálakonu. Kvenréttindabarátta á Íslandi og þróun kvenréttinda í Kína
Íslenskar konur hafa barist fyrir stöðu sinni í þjóðfélaginu í mjög langan tíma. Í daglegu lífi er misrétti kynjanna enn mjög áberandi á Íslandi. Viðfangsefni þessarar ritgerðar er umfjöllun um helstu baráttumál kvenna á Ísland frá lokum 19. aldar til síðari hluta 20. aldar. Einnig fjalla ég um hvaða breytingar hafa orðið á stöðu kvenna í okkar nútímaþjóðfélagi. Mikill árangur hefur náðst í baráttunni í gegnum árin og hafa margar íslenskar konur lagt mikið á sig til að bæta lífskjör kynsystra sinna, auka tækifæri þeirra og vægi í þjóðfélaginu. Hinsvegar hafa íslenskar konur enn ekki náð fullnægjandi jafnrétti og enn leynist misrétti kynjanna á ýmsum stöðum. Í þessari umfjöllun mun ég einnig fjalla um þróun á stöðu kvenna í Kína frá lokum 19. aldar til dagsins í dag. Það er gert til að veita samanburð við íslensku baráttuna og sýna hana í öðru ljósi.
| Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
|---|---|---|---|---|---|
| Fra husmodur til stjornmalakonu.pdf | 1,54 MB | Open | Heildartexti | View/Open | |
| Yfirlysing_BA.pdf | 209,12 kB | Locked | Yfirlýsing |