Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/27383
Þessi ritgerð er bókmenntaleg greining á nokkrum verkum eftir Svövu Jakobsdóttur. Femínísk fræði, ásamt kenningum úr m.a. heimspeki og félagsfræði, verða notuð til að greina verkin. Hugmyndum um hversdagsleikann og félagshegðun er velt upp og því verða hugmyndir Foucault um hið sjálfsmeðvitaða eftirlitssamfélag, einnig þekkt sem „alsjáin“, í fyrirrúmi þegar félagsþrýstingur er kannaður. Leitast verður eftir því að kanna hvernig samfélagslegur þrýstingur bælir niður persónur og vegna áhrifa „alsjánnar“ finnst þeim þrengt að sér og þær neyddar til að fylgja samfélagslegum stöðlum um hvernig þær eigi að haga sér. Það veldur þeim talsverðum óþægindum í daglegu lífi. Vegna þess hve samdauna fólk er orðið hversdagslegum staðalímyndum eru þær því dregnar fram í textanum og framandgerðar til þess að fá nýtt sjónarhorn á hversdagsleikann. Hér verður kannað hversu mikil áhrif samfélagslegir staðlar hafa á persónur í skáldverkum Svövu og athugað hvernig það birtist í skáldskapnum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Yfirlysing_Sigridur.pdf | 78.13 kB | Lokaður | Yfirlýsing | ||
SigrKrIng-BA_LOKA.pdf | 229.08 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |