Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/27390
Netlist hefur mætt skilningsleysi og ekki fengið stað innan listheimsins þrátt fyrir að vera alþjóðleg listhreyfing. Netlistin kom fram á tíunda áratug síðustu aldar en vegna eiginleika miðils hennar hefur reynst erfitt að skipa henni í hefðbundna flokka myndlistar og því virðist hún hafa mætt áhugaleysi frá liststofnunum. Er jafnvel rétt að telja að skilningsleysi hafi verið orsök þess að netlistin náði ekki að festa sig í sessi á Íslandi? Hér verður staða íslenskrar netlistar í samtímanum rannsökuð út frá þeim utanaðkomandi öflum sem móta íslenskan listheim. Fagurfræði netlistarinnar og eiginleikar hennar verða greind í þeim tilgangi að svara þessari spurningu. Einnig verður netlist sett í samhengi við listasöguna til að sýna fram á tengsl við almenna þróun myndlistar. Í öðrum kafla verður fjallað um íslenska netlist og henni gerð nánari skil. Aðalega verður tekin fyrir sýningin Íslensk og erlend veflist – orb.is þar sem hún markar ákveðinn hápunkt íslenskrar netlistar. Í þriðja kafla verður þróun netlistar á Íslandi skoðuð út frá þeim öflum sem hún stóð andspænis. Gert verður grein fyrir því að netlistin passaði ekki inn í hefðbundið flokkunarkerfi myndlistar vegna eiginleika miðils hennar sem er í stöðugri þróun og því fékk hún ekki stöðu innan listheimsins samhliða öðrum listum. Lítill sem enginn fjárstuðningur er veittur til listsköpunar með nýmiðlum á Íslandi og aðstaða til sýningarhalds eða listsköpunar virðist ekki vera í boði. Þar af leiðandi virðist sem svo að listamenn hafi einfaldlega lagt netlistina á hilluna.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
BA-ritgerd_netlist_loka.pdf | 5,09 MB | Open | Heildartexti | View/Open | |
Yfirlýsing_HBK.pdf | 5,92 MB | Locked | Yfirlýsing |