Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/2746
Miklar árstíðarsveiflur í ferðaþjónustu einkenna Sveitarfélagið Hornafjörð. Árstíðarsveiflur í ferðaþjónustu er þekkt fyrirbæri í ferðaþjónustu, sérstaklega á norðurslóðum, en hefur lítið verið rannsakað hér á landi. Margir ferðaþjónustuaðilar leggja mikla vinnu og fjármagn í að vinna á móti árstíðarsveiflum í ferðaþjónustu. Markmið þessarar rannsóknar er fjórþætt, þ.e. að kanna hvaða möguleika Hornafjörður hefur í lengingu ferðamannatímans, hver staðan er í ferðaþjónustunni, hvert á að stefna og hvað er hægt að gera. Viðtöl voru tekin við tíu viðmælendur sem allir koma með einum eða öðrum hætti að ferðaþjónustunni á svæðinu.
Niðurstöður gefa til kynna að miklir möguleikar eru í ferðaþjónustu á svæðinu og að markmið og stefna ferðaþjónustuaðila er að lengja ferðamannatímann og þannig auka arðsemi í greininni. Þannig að markmiðin eru komin en það vantar að vinna markvissa stefnumótunarvinnu um hvernig eigi að ná þeim. Ýmsar hugmyndir komu upp á yfirborðið í viðtölunum og við rannsóknarvinnu ritgerðarinnar og þarf að nýta þær auðlindir sem til eru á svæðinu betur í þessari uppbyggingu.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| BS-ritgerd_Holmfridur Br Thrudmarsdottir_fixed.pdf | 766,52 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |