Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/2759
Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða brunaslys barna á Íslandi og meta hvort aðdragandi, orsök og eðli brunaáverkanna gæfi til kynna þörf fyrir auknar forvarnir. Kannaðar voru innlagnir barna vegna bruna á Landspítalanum, árin 2004-2008. Reynt var að áætla gróflega kostnað vegna brunameðferðar barna árið 2008 á spítalanum. Rannsóknin var afturvirk og var fyrirfram ákveðnum upplýsingum safnað úr sjúkraskrám að fengnum tilskyldum leyfum. Í úrtaki rannsóknarinnar voru 78 börn sem dvöldu á spítalanum vegna brunaáverka á þessum árum og var það fundið með ICD 10-læknisfræðigreiningu. Gerðar hafa verið þrjár rannsóknir á sama efni hérlendis og var ætlunin að bera niðurstöður þessarar rannsóknar saman við þær. Niðurstöður rannsóknarinnar voru að aðalbrunavaldur voru heitir vökvar eins og í fyrri rannsóknum, en nokkur aukning hefur orðið á brunaslysum af völdum skotelda og gassprenginga. Alvarleiki áverkanna, aldur og kynjaskipting hefur lítið breyst í gegnum árin. Áætlaður kostnaður vegna brunameðferðar barna árið 2008 var um 31 milljón króna. Þetta er há upphæð í ljósi þess að mögulegt hefði verið að koma í veg fyrir flest slysanna svo ekki sé minnst á þær líkamlegu og andlegu þjáningar sem brunasjúklingar ganga í gegnum. Því er greinileg þörf fyrir auknar og jafnvel breyttar áherslur í forvörnum hérlendis.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
pd_fixed.pdf | 3.2 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |