Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/27638
Útivistarfatnaður hefur lengi vel verið staðalbúnaður allra Íslendinga. Ekki er langt síðan íslenska vörumerkið 66°Norður var eitt síns lið á markaði en í dag hafa fleiri útivistarmerki verið að koma inn á markað, íslensk jafn sem erlend. En fleira hefur breyst síðan 66°Norður kom fyrst á markað og má þar einna helst nefna hvað útivistarfatnaður hafa færst nær lífsstíls- og tískufatnaði og eru mörkin á milli vöruflokka stöðugt að minnka, því fólk vill geta nýtt fatnaðinn við ólík tilefni.
66°Norður er eitt elsta fyrirtækið hér á landi og hefur því lengi verið þekkt. Megin markmið þessa verkefnis er að skoða hvernig 66°Norður tekst á við að skapa sterka stöðu á markaði og þar með rýna í fræði vörumerkjastjórnunar samhliða því.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Oddný Blöndal Ragnarsdóttir BS -pdf - tilbuin.pdf | 674,04 kB | Lokaður til...12.05.2030 | Heildartexti | ||
skemman.yfirlýsing.pdf | 1,4 MB | Lokaður | Yfirlýsing |