is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/27670

Titill: 
  • Uppsetning skriðprófs og magngreining genatjáningar til að meta áhrif fituleysanlegra efna á HaCat frumur
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða áhrif fituinnihalds Kerecis Omega3 Wound fjargræðlingsins (e. xenograft) á þætti sem eru nauðsynlegir fyrir sáragróanda. Fituinnihald hans er frábrugðið öllum græðlingnum á markaðnum og talið er að það stuðli á einhvern hátt að skilvirkari sáragróanda. Til að öðlast betri skilning á virkni fituinnihaldsins í sáragróanda voru áhrif þess á skrið HaCat keratínfrumna metin þar sem að skrið keratínfrumna er mikilvægur þáttur í myndun nýs húðlags eftir sáramyndun. Að auki voru áhrif fituinnihaldsins á tjáningu ensímsins 15-LOX greind, en ensímið er virkt í smíði lífvirkra fitusýruafleiða sem stuðla að hjöðnun bólgufasans sem er viðvarandi í þrálátum sárum. Til mats á skriðhraða var skriðpróf sett upp og bestað. Niðurstöður sýndu örari skriðhraða frumna í rækt eftir meðhöndlun með fituinnihaldinu samanborið við neikvæðan kontról. Hlutfallslegt qPCR var notað til að magngreina tjáningu 15-LOX, niðurstöður sýndu aukna tjáningu þegar frumur voru meðhöndlaðar bæði með fituinnihaldinu og áverkum. Samkvæmt niðurstöðum þessarar tilraunar er líklegt að fituinnihald Kerecis fjargræðlingsins stuðli að skilvirkari sáragróanda vegna þeirra áhrifa sem það kann að hafa á keratínfrumur í sáragróanda.

  • Útdráttur er á ensku

    The purpose of this project was to study the effects of the lipid contents of the Kerecis Omega3 Wound xenograft on factors involved in wound healing. It's lipid content is different from other skin grafts on the market and is thought to contribute in some way to wound healing. To gain a better understanding of the activity of the lipid contents in wound healing it's effect on cell migration of HaCat keratinocytes were evaluated, for the migration of keratinocytes is an important event in formation of new skin after injury. Also, the effects of the lipid contents on the expression of the enzyme 15-LOX were quantified. This enzyme is active in the synthesis of anti-inflammatory bioactive lipid mediators which act to resolve the inflammatory phase which is prolonged in chronic wounds. A migration assay was optimized to evaluate the effects on cell migration speed amongst cells in culture. Results showed faster migration for cells that were treated with the lipids, compared to negative control cells. The expression of 15-LOX was quantified by relative qPCR, the results showed increased expression when cells were treated with the lipids alongside injuries. According to these results it is probable that the lipid content of the Kerecis xenograft helps promote effective wound healing due to the effects on keratinocytes in wound healing.

Samþykkt: 
  • 29.5.2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/27670


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
rafræn yfirlýsing.pdf320,64 kBLokaðurYfirlýsingPDF
BS%20RITGERÐ%20RÓSA%20SÓLVEIG-lokaútgáfa.pdf2,05 MBLokaður til...24.05.2027HeildartextiPDF