Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/27785
Upprunaferðamennska hefur farið sífellt vaxandi síðastliðin ár og bendir það til þess að margir vilji kynnast uppruna sínum. Upprunaferðamennskan er ein tegund af arfleifðarferðamennsku, en arfleifð getur haft mikið gildi fyrir fólk. Ferðamenn sem heimsækja upprunalönd sínu tilheyra dreifþjóð, sem hefur tengsl við eitthvað annað land en búsetuland sitt og er til staðar samsemd hjá þeim sem tengist upprunanum. Einn slíkur hópur er Vestur-Íslendingar í Norður-Ameríku. Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á hverju samsemd dreifþjóðar Vestur-Íslendinganna byggist. Einnig er markmið hennar að komast að því hvernig samsemdin er raungerð í gegnum The Snorri Program og Snorri Plus, en það eru verkefni sem gefa Vestur-Íslendingum tækifæri til þess að koma til Íslands og kynnast upprunalandi sínu. Rannsóknin byggir í megindráttum á viðtölum sem tekin voru við átta þátttakendur þessa verkefna þegar þeir dvöldust hér sumarið 2016. Einnig er stuðst við spurningakönnun sem 28 þátttakendur beggja verkefna svöruðu fyrir komu sína til Íslands. Niðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós að samsemd dreifþjóðar Vestur-Íslendinga í Norður-Ameríku er samansett úr mörgum þáttum. Má þar helst nefna uppeldi og fjölskylduhagi, nærsamfélag, tengingu við hefðir, menningu og sögu upprunalandsins ásamt tengslum við staði tengdum sögu dreifþjóðarinnar. Að auki styrkir félagslíf meðlima dreifþjóðarinnar samsemdina meðal þeirra. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að samsemdin sem virkjast með þátttöku í Snorraverkefnunum geri það í gegnum vandaða kynningu á upprunalandinu, heimsóknir á upprunastaði og kynni við ættingja. Einnig virkjast hún í gegnum samferðamenn sem eru allir komnir í sama tilgangi til upprunalandsins.
Lykilorð: Arfleifðarferðamennska, upprunaferðamennska, samsemd, dreifþjóð, Vestur-Íslendingar, Snorraverkefnin.
Roots tourism has been constantly growing in recent years suggesting that many people want to know their origin. Roots tourism is a type of heritage tourism, but heritage can be of great value for people. Those who travel to their country of origin belong to a diaspora and they have a connection to another country than the one where they live and share an identity that relates their origin. One such group is the Western Icelanders in North America. The objective of this study is to answer the question how the identity of the Western Icelandic diaspora is realized. A second objective is to examine how the identity is expressed through The Snorri Program and Snorri Plus. These are programs that give Western Icelanders an opportunity to visit Iceland and get to know their country of origin. The study is mainly based on interviews with eight participants of these programs during their stay in Iceland in the summer of 2016. The research also makes use of a questionnaire that 28 participants of either of these programs answered before their arrival to Iceland. The study reveals that the identity of the Western Icelandic diaspora in North America is composed of many factors such as upbringing and family influence, local community, connection to traditions, culture and history of the country of origin as well as connection to places that are related to the history of the diaspora. In addition, the social life of the members of the diaspora has to do with the identity. The study indicates that the identity which is kindled through participation in the Snorri Programs is because of elaborate introduction of the country of origin, visits to places of origin and encounters with Icelandic relatives. The identity is also strengthened through interaction with fellow travelers who all come to their country of origin with the same purpose.
Keywords: Heritage tourism, roots tourism, identity, diaspora, Western Icelanders, The Snorri Programs.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MS-verkefni, Gerður Gautsdóttir.pdf | 1,24 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing.pdf | 12,14 kB | Lokaður | Yfirlýsing |