is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/27909

Titill: 
  • Leynist einelti og kynbundin áreitni innan Kennarasambands Íslands? : megindleg rannsókn á algengi eineltis og kynbundinnar áreitni innan aðildarfélaga Kennarasambands Íslands
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi rannsókn byggir á könnun sem í samvinnu við Kennarasamband Íslands (KÍ) var lögð var fyrir alla félagsmenn aðildarfélaga KÍ. Ætlunin var að kanna vinnustaðaeinelti og kynbundna áreitni en könnunin var send á 9.839 félagsmenn og tóku 4.518 þátt. Niðurstöður sýndu að 10,2% þátttakenda höfðu orðið fyrir einelti á vinnustað sínum á síðast liðnum tveimur árum og 21,2% töldu sig hafa orðið vitni að einelti. Fæst málin voru tilkynnt og enn færri fengu viðeigandi úrvinnslu. Hæst var hlutfall eineltis innan Félags framhaldsskólakennara en lægst var það hjá Félagi stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélagi Íslands. Athygli vakti að einelti virðist vera algengara hjá eldri hópum auk þess að karlar voru líklegri fórnarlömb en konur. Þegar litið var til kynbundinnar áreitni var hún algengust innan Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum en minnst var um hana hjá Félagi leikskólakennara. Enginn munur var á kynjunum en yngstu aldurshóparnir finna meira fyrir henni en aðrir hópar. Ein athyglisverðasta niðurstaða rannsóknarinnar var sú staðreynd að 37,0% þátttakenda sögðust ekki vita hvert þeir ættu að tilkynna brot ef þeir yrðu fyrir aðkasti en þegar litið var einungis til stjórnendafélaganna helmingaðist sú tala. Því er ljóst að einelti og kynbundin áreitni fyrirfinnst víða innan KÍ og þegar einungis brot mála fær úrlausn er vert að bregðast við hið fyrsta áður en vandinn vex enn meira. Þegar litið er til þess að flest sinnum við starfinu okkar betur og afköstum meiru þegar okkur líður vel í vinnu hljóta allir að sjá sér hag í því að skapa gott og þægilegt vinnuumhverfi þar sem ungdómur landsins undirbýr sig fyrir komandi átök lífsins.
    Lykilhugtök: Vinnustaðaeinelti, kynbundin áreitni, Kennarasamband Íslands.

  • Útdráttur er á ensku

    This paper reports on a survey on workplace bullying and gender-based harassment (GBH) carried out in collaboration with the Teachers Union (KÍ) in Iceland. Of those 9.839 self-questionnaire sent only 4.518 responded. Results indicated that in the last two years 10,2% of union members in Iceland had been victims of bullying and 21,2% had witnessed it. Most incidents were not reported and even fewer got any treatment at all. The highest rate of bullying was found among highschool teachers but the lowest was among union of supervisors in kindergarten and middle-school. Union members under 36 years of age reported the highest rate of bullying and men were more likely to be victimized than women. GBH was most common within highschool faculty and supervisors but least common among kindergarten teachers. GBH showed no significant difference between genders however participants under 46 years of age were more likely to encounter it than others. The most alarming finding of this paper was the fact that 37,0% of total respondents were unaware of where they could turn to in case of being exposed to bullying or GBH. However among management unions more than 80% were well aware of it. In conclusion it is our believe that bullying and GBH is a problem within KÍ as roughly 7 out of every 8 cases do not recieve any treatment at all. It is pivotal for all participant, unions and schools that this dilemma gets more attention and reaction because where the workplace environment is positive and ideal, productivity and worksatisfaction increases. When this environment is shared with the younger and more fragile generations, everyone should be able to recognize the benefits of eradicating bullying and gender-based harassment from our school.
    Keywords: workplace bullying, gender-based harassment (GBH), teachers union in Iceland.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 8.5.2018.
Samþykkt: 
  • 6.6.2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/27909


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaskil (BA) (Friðrik og Jóhann).pdf794.07 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna