en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/27944

Title: 
  • Title is in Icelandic Líknar- og lífslokameðferð á landsbyggðinni : rannsóknaráætlun
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að skoða þjónustu líknar- og lífslokameðferðar á landsbyggðinni.
    Með hækkandi lífaldri koma fleiri til með að þurfa meðferð og umönnun. Stór þáttur í starfi hjúkrunarfræðinga er umönnun við lífslok þar sem lögð er áhersla á vönduð samskipti og persónulega umönnun við bæði sjúklinga og aðstandendur.
    Í mörgum dreifbýlum og smærri samfélögum er heilbrigðisþjónusta af skornum skammti og þurfa sjúklingar oft að leita langt í þjónustu. Í mörgum sveitarfélögum eru engin starfandi hjúkrunarheimili né heimahjúkrun og almenn heilbrigðisþjónusta lítil. Þurfa því margir að flytjast búferlum til að sækja heilbrigðisþjónustu. Hjúkrunarrými eru oft yfirfull og biðlistar langir einnig getur verið erfitt að halda uppi þjónustu þegar mannekla, fagleg einangrun og fjármagnsskortur hefur áhrif á gæði þjónustu.
    Í fyrirhugaðri rannsókn verður notast við eigindlega rannsóknaraðferð og stuðst verður við fyrirbærafræðilega hugmyndarfræði. Gagna verður aflað með viðtölum þar sem notast verður við opnar spurningar. Tekin verða viðtöl við reynda hjúkrunarfræðinga á landsbyggðinni sem hafa starfsreynslu í líknar- og lífslokameðferð.
    Höfundar telja að bæta þurfi skipulag og þjónustu líknar- og lífslokameðferðar á landsbyggðinni og koma á tengslaneti á milli svæða og byggja upp samstarf sem gerir minni stofnunum kleift að tengjast þeim stærri. Einnig viljum við efla fræðilega þekkingu á viðfangsefninu til frekari rannsókna.
    Lykilorð: Lífslokameðferð, líknarmeðferð, hjúkrun, landsbyggð, dreifbýli, eigindleg rannsóknaraðferð.

  • The following research proposal is a thesis for B.S. degree in nursing at the University of Akureyri. The purpose of the proposed study is to examine the service provided in palliative andend-of-life care in small communities in rural areas in Iceland.
    Growth and a considerable increase in the elderly poulation in Iceland will result in more patients going to need more treatment and care. End-of-life care is a big part of the nursing job where human relations and care for patients and family members are important isssues. In many rural areas access to health care is often limited and patients often have to travel far to get the service they need. In some of the communities none nursing homes exists nor do they provide home care, meaning that often families have to move to get the help they
    need. It can be difficult to provide quality service when shortage of staff, professional isolation and sources of finance are limited.
    A qualitative phenomenological approach will be used. Data will be collected through interviews using open questions. Participants will be nurses in rural areas that have experience of palliative- and end-of-life care. The authors believe that there is a need for improvement in
    the structure of the service and more network-team cooperation between smaller and larger areas and institutions would improve the service a great deal. Also we want to increase theoretical knowledge on the subject for further research.
    Keywords: End of life care, palliative care, nursing, remote area, rural area, qualitative
    reasearch method

Accepted: 
  • Jun 6, 2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/27944


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Líknar- og lífslokameðferð á landsbyggðinni.pdf364.31 kBOpenHeildartextiPDFView/Open