is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Hólum > Ferðamáladeild > BA verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/27973

Titill: 
  • Öryggisáætlanir í ævintýraferðaþjónustu á Íslandi : viðhorf stjórnenda fyrirtækja í ævintýraferðaþjónustu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ferðamannastraumur til landsins hefur aukist gríðarlega síðustu ár og ferðamenn á Íslandi hafa aldrei verið fleiri en nú. Mikilvægi þess að öryggi sé í hávegum haft eykst í takt við fjölgun ferðamanna, ekki síst í ævintýraferðaþjónustu þar sem áhætta og spenna eru helstu drifkraftar. Slys sem orðið hafa í greininni, aukið framboð fyrirtækja samhliða fjölgun ferðamanna sem og skortur á rannsóknum öryggistengdra mála, voru ástæða fyrir tilurð verkefnisins Öryggisáætlanir í ævintýraferðaþjónustu á Íslandi. Meginmarkmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á stöðu öryggistengdra mála í ævintýraferðaþjónustu á Íslandi. Viðhorf stjórnenda til öryggisáætlana er kannað sem og hvaða áhrif öryggisáætlanir hafa á gæði þjónustu og öryggi starfsmanna og viðskiptavina.
    Megindlegri rannsóknaraðferð var beitt við vinnslu rannsóknarinnar og rafræn spurningakönnun send út til 220 fyrirtækja í ævintýraferðaþjónustu hér á landi.
    Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að meirihluti fyrirtækjanna eru með öryggisáætlun í gildi og telja að miklu máli skipti að fyrirtæki í ævintýraferðaþjónustu hafi slíka áætlun. Áberandi jákvæðni virðist ríkja meðal slíkra fyrirtækja gagnvart öryggisáætlunum og áhrifum þeirra á gæði þjónustu. Þá telja flest fyrirtækin að öryggisáætlanir stuðli einnig að auknu öryggi starfsmanna þeirra og viðskiptavina.
    Lykilorð: Ævintýraferðaþjónusta, slysahætta, áhætta, öryggisáætlun, viðhorf stjórnenda

  • Útdráttur er á ensku

    There has been a significant increase in tourist arrivals in Iceland in recent years. Visitor numbers have been higher than ever before. The importance of a high regard for safety, rises in line with the increase of tourist numbers; especially in adventure tourism where risk and
    excitement are the driving forces. Contributing factors towards the implementation of this study included accidents within the adventure tourism industry, an increase in supply of such services and a lack of safety studies in the field. The principal aim of this study is to shed
    light on the current position of safety as it pertains to adventure tourism in Iceland. Furthermore, this study takes a closer look at managers approach to safety-plans as well as the impact safety-plans have on the service quality as well as customer and employee safety.
    A quantitative research method was used in this study. An electronic questionnaire was sent to a total of 220 adventure tourism businesses in Iceland. The study indicated that the majority of the businesses emphasized to have a safety-plan and consider it to be important.
    The study also indicated that safety-plans are seen as contributors to increased customers and employees safety.
    Keywords: Adventure tourism, accidents, risk, safety-plan, managers approach

Samþykkt: 
  • 7.6.2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/27973


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Öryggisáætlanir í ævintýraferðaþjónustu á Íslandi - Valgerður Káradóttir.pdf1,56 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna