is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/31091

Titill: 
  • Gildi Hljóm-2 : málþroski leikskólabarna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Loka ritgerð þessi er til B.Ed. prófs í leikskólakennarafræðum við Háskólann á Akureyri árið 2018. Í þessari ritgerð verður fjallað um málþroska barna á leikskólaaldri, gerð er grein fyrir kenningum um mál og þróun þess ásamt því að gerð er grein fyrir Hljóm-2 skimun sem lögð er fyrir 5 ára börn í leikskóla. Tilgangur þessarar ritgerðar er að fá sýn á það hvernig hægt er að efla málþroska nemenda sem koma út með slaka eða mjög slaka færni í Hljóm-2. Við gerðum rannsókn sem fólst í því að sendar voru spurningar á leikskólakennara úr fimm leikskólum í Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu þar sem spurt var út í Hljóm-2, hvort það sé lagt fyrir á leikskólanum, hvort framfarir hafa orðið og hvernig unnið er með niðurstöðurnar. Í ljós kom að Hljóm -2 er lagt fyrir í öllum leikskólunum og unnið er á markvissan hátt með niðurstöður þess, einnig hafa niðurstöður úr Hljóm-2 farið batnandi síðustu ár hjá nemendum þessara fimm leikskóla. Einnig voru skoðaðar niðurstöður úr Hljóm-2 skimunum frá árunum 2014 - 2017 í Rangárvallar- og Vestur Skaftafellssýslu en í ljós kom að Hljóm-2 skimunin kemur betur og betur út síðustu árin. Fórum við því að velta fyrir okkur hvort námsefnið Lubbi finnur málbein gæti haft áhrif á velgengni nemenda. Kennsluáætlanir fylgja ritgerðinni og þær er hægt að nota til að vinna að eflingu málþroska hjá börnum sem eru með slaka eða mjög slaka færni á einhverjum af þeim þáttum sem kannaðir eru í Hljóm-2 skimuninni.

  • Útdráttur er á ensku

    The main subject of this thesis is to discuss language development, Hljóm-2 test which is proposed for five year old children and then we analyse the results of Hljóm-2. The teaching of various scholars will be explained and the development of language. We conducted a survey involving sending a few questions to 5 kindergarten teachers about Hljóm-2 and asked if they submitted the test and if there were any good results and how they used the results to improve the children’s language development. The results for the past four years have been improving and our thought is that the curriculum Lubbi finnur málbein has been the answer for that improvement. Also brought together are diverse teaching plans are included in the thesis to enable children’s language development.

Samþykkt: 
  • 12.6.2018
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/31091


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
gildihljom2malthroskileikskolabarna.pdf1.72 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna