Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19154
Í byrjun árs 2011 var tekið í gagnið nýtt fyrirkomulag við sorphirðu á Vopnafirði, svokallað einnar tunnu kerfi.
Í þessari rannsókn er samfélagsleg ábyrgð sveitarfélagsins gagnvart umhverfismálum skoðuð í tengslum við flokkun og endurvinnslu á sorpi, en samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja/stofnana getur verið margbreytileg.
Markmið rannsóknarinnar er að leggja mat á viðhorf og áhuga Vopnfirðinga til sorpflokkunar og endurvinnslu sorps í sveitarfélaginu nú þegar komin er þriggja ára reynsla á það fyrirkomulag. Einnig er verkefninu ætlað að leita svara við spurningum um hvaða fyrirkomulag íbúar sveitarfélagsins kjósi helst í sorphirðumálum og hvað sveitarfélagið gæti lagt af mörkum til að svara kröfum íbúa.
Meðal niðurstaðna eru, að áhugi íbúa á flokkun og endurvinnslu sorps hefur aukist umtalsvert á þessu þriggja ára tímabili. Viðhorf eru mjög jákvæð gagnvart núverandi fyrirkomulagi sem kemur meðal annars fram í því að meirihluti svarenda er sammála um mikilvægi þess að draga úr urðun sorps. Með því móti má draga úr umhverfismengun og sóun náttúruauðlinda, komandi kynslóðum til hagsbóta.
Lykilorð: Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja, umbúðir, flokkun, endurvinnsla og sveitarfélagið Vopnafjarðarhreppur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð prentun 09-04-2014.pdf | 1.16 MB | Opinn | Skoða/Opna |