Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/28032
Við Jökulsárlón upplifir maður yfirþyrmandi smæð sína gagnvart afli náttúrunnar, stærð og fegurð jöklanna. Tilfinningin sem staðurinn afhjúpar í hugarheimi mannverunnar er kjarninn í byggingunni. Tilgangur hennar er að samsvara og ýkja þá tilfinningu sem staðurinn spannar nú þegar með baðstað. Ein mesta smæð mannverunnar er í berskjaldaðri nekt sinni og að skynja rými í gegnum húðina. Líkaminn gefur svigrúm til athafna innan rýmis hugans og kjarna sjálfsins. Þröskuldar innan náttúru og mannlegrar tilvistar líkt og berg verður að sandi, jökull verður að sjó og mannveran afhjúpast í dýpt og upplifun milli staðar og rýmis. Afhjúpun ferilsins að afklæðast og baðast hefur þröskulda sem endurspeglast í flekum massans og efniskennd byggingarinnar.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Jokulsarlon skyrsla.pdf | 46.47 MB | Open | Greinargerð | View/Open |