Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/28040
Til að bæta aðstöðu og fræðslu fyrir ferðamenn um þetta fagra en síbreytilega náttúrufyrirbæri er gerð tillaga um leið að Jökulsárlóni. Leiðin er í gegnum þjónustumiðstöð á vesturbakka Jökulsár, þar sem gesturinn hverfur inn í landið og fræðist um sögu þess og náttúru áður en hann fær borið sjálft Lónið augum. Þannig öðlast gesturinn virðingu fyrir hinu viðkvæma umhverfi áður en mannvirkið sleppir honum lausum í náttúruna. Miðstöðin er dökk að innan og gesturinn eltir ljósið í enda byggingarinnar. Á leiðinni eru útskot frá ganginum sem þrengist, en opnast svo skyndilega fyrir horn. Gesturinn stendur þá andspænis Jökulsárlóni með óskerta sýn til Breiðamerkurjökuls.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
SandraRunGreining.pdf | 22.56 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |