Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/28088
Allt í heiminum hefur sína tíðni eða tíðnir, allt er á stanslausri hreyfingu. Frá vetrarbrautum og sólkerfum niður í frumeindir. Í okkar daglega lífi upplifum við tíðni að mestu ómeðvitað í formi ljós- og hljóðbylgna. Öll hljóð sem við heyrum, eru vegna atvika sem senda af stað keðjuverkun af titringi sameinda sem ferðast áfram um rými. Hljóðhimnur okkar nema þennan titring sem hljóð. Það sama á við um ljós. Augu okkar lesa tíðni rafsegulbylgjanna sem ljósið er og við greinum þannig liti og birtu. Við skynjum þó aðeins lítinn part af tíðnirófi hljóð- og ljósbylgna og eru bylgjur á stærð við hús og niður í öreindir á stanslausri hreyfingu allstaðar í kringum okkur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Tidni_greinagerd_helgeinars.pdf | 23.63 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |