Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/28191
Viðfangsefni og tilgangur þessarar rannsóknar var að fá fram viðhorf og upplifun foreldra með barn í 1. bekk, af foreldrasamstarfi. Skoða hver upplifun þessara foreldra er af samstarfinu og hvað það er sem þeir vilja leggja áherslu á. Börn standa á ákveðnum tímamótum í lífinu við grunnskólabyrjun. Leikskólastarfi er lokið og 10 ára grunnskólaganga að hefjast. Stuðningur og þátttaka foreldra er þess vegna mikilvægur þáttur á þessu breytingaskeiði en rannskóknir hafa sýnt fram á að þáttaka foreldra í námi barna sinna hefur áhrif á líðan og námsárangur þeirra. Því er mikilvægt að fá fram upplifun foreldra á samstarfi við kennara og skóla og heyra hvað það er sem foreldrum finnst vera mikilvægt að leggja áherslu á til þess að samstarfið verði árangursríkt og þeir geti tekið fullan þátt í skólastarfi barna sinna.
Aðferðin við rannsóknina var eigindleg, nánar tiltekið viðtöl. Viðtöl henta vel sem gagnasöfnunaraðferð þegar skoðuð er reynsla, skynjun, viðhorf, þekking og væntingar og á því vel við hérna. Þátttakendur voru foreldrar sex barna í 1. bekk í grunnskóla. Allir þátttakendur áttu barn í fyrsta skipti í grunnskóla og höfðu þannig ekki reynslu af starfi með kennurum og skóla. Viðtölin fóru fram í lok febrúar og byrjun mars 2017.
Megin niðurstöður þessarar rannsóknar eru að foreldrar segja samstarfið
við skólann almennt vera tölvupóstasamstarf og að þeir velji sjálfir að senda tölvupóst til kennara frekar en að hafa samskipti augliti til auglitis. Foreldrar upplifa helst að þá vanti upplýsingar um þær aðferðir sem kennari notar við kennslu svo þeir geti stutt betur við nám barna sinna heima. Þrátt fyrir tíð tölvupóstasamskipti við kennara sakna þeir pósta sem fjalla einungis um þeirra barn í stað þess að fá aðeins almenna pósta er varða allan bekkinn. Einnig upplifa þeir að skólasamfélagið og kennarinn gleyma stundum að þeir eru nýir í þessu umhverfi rétt eins og börnin og vantar því upplýsingar sem aðrir foreldrar telja sjálfsagðar.
The purpose of this study was to obtain views and experiences of parents
with a child in first grade; in particular communication and cooperation
between parents and teachers, and to see what experience these parents have regarding the partnership and what focus they would prefer. Children who are starting Primary school are standing at crossroads in life. Preschool is completed and 10 years of elementary education start and the support and involvement of parents is an important factor. Studies have shown that parents involvement affects their well-being and academic achievement. It is important to obtain parental experiences of cooperation and hear what it is they feel is important to focus on so that the cooperation will be successful and they can participate fully.
The method of the study was qualitative, namely interviews. Performing
interviews is a suitable data collection method with regards to experience, perception, attitude, knowledge and expectations and is therefore appropriate in this context. Participants in this study were the parents of six children in elementary schools. All participants had a child for the first time in the first grade. The interviews were conducted in February and March 2017. The main outcome of this study was that parents define the cooperation generally as communication through emails. They themselves choose to send emails to teachers rather than face to face communication. Parents mention that the information they need most is what methods the teacher uses, so they can better support their children's learning at home. Despite frequent email communication with teachers, parents often miss getting information that only applies to their child and not just receive mail in general regarding the
whole class. Also they experience that the teacher sometimes seems to forget that they are new to this environment as well as the children, and therefore lack information that more experienced parents already have.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
skil í skemmuna.pdf | 936,86 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |