en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

Reykjavík University > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Viðskipta- og hagfræðideild (og BSc sálfræði -2019) / Department of Business and Economics >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/28211

Title: 
  • Title is in Icelandic Uppgjör íslenskra félaga í erlendri mynt
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Rannsókn þessi fjallar um íslensk félög sem hafa heimild til færslu bókhalds og samnings ársreiknings í erlendri mynt. Við gerð rannsóknarinnar var aflað gagna úr ársreikningum þessara félaga en þau eru alls 236 talsins. Jafnframt voru tekin viðtöl við forsvarsmenn fjögurra félaga ásamt viðtali við sérfræðing á þessu sviði. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að langflest félaganna notast við evru eða bandaríkjadal. Auk þess kemur fram að algengara er innan ákveðinna atvinnugreina að félög færi bókhald og semji ársreikning í erlendum gjaldmiðli. Niðurstöðurnar gefa jafnframt til kynna að félög sem færa bókhald og semja ársreikning í erlendri mynt skila hlutfallslega betri rekstrarniðurstöðu og eru fjárhagslega betur stæð en önnur íslensk félög. Teknar eru saman nokkrar ástæður þess að stjórnendur félaga ákveða að breyta um gjaldmiðil í rekstri þeirra. Þær helstu eru minni áhrif gengisbreytinga og réttari mynd af rekstri félaganna. Ennfremur benda niðurstöðurnar til þess að tímasetning með tilliti til gengis íslensku krónunnar geti skipt máli þegar breytt er um rekstrargjaldmiðil hjá félögum.

Accepted: 
  • Jun 13, 2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/28211


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Uppgjor_i_erlendri_mynt.pdf815,03 kBOpenHeildartextiPDFView/Open