is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Viðskiptadeild (og BSc sálfræði -2019) / Department of Business Administration >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/28224

Titill: 
  • Þjónustulíkan og viðskiptamódel fyrir rafhleðslustöðvar Reykjavíkurborgar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eigendum rafbíla á Íslandi hefur fjölgað á undanförnum árum. Gangi áætlanir ríkisstjórnarinnar eftir mun markaðshlutdeild rafbíla sem verða í umferð á Íslandi aukast enn frekar næstu árin. Í samræmi við það var ákveðið að ráðstafa fjármagni til uppbyggingar hleðslustöðva fyrir rafbíla á Íslandi. Ætla má að Reykjavík, sem stærsta vinnusóknarsvæði Íslands muni verða miðpunktur fjölgunar hleðslustöðva á næstu árum. Reykjavíkurborg hefur ákveðið að styrkja innviði sem þarf til að fjölga rafbílum á Íslandi. Það er lítið vitað um hegðun rafbílaeigenda á Íslandi og hvaða væntingar þeir hafa til þjónustu þegar kemur að hleðslu rafbíla. Þessu rannsóknarverkefni er ætlað að rannsaka þær væntingar sem eigendur rafbíla hafa til þjónustu þegar kemur að hleðslu rafbíla. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að almennt séu rafbílaeigendur óánægðir með aðstöðu og þjónustu við þá á Íslandi. Notendur rafbíla vilja sjá fjölgun rafhleðslustöðva sem og fleiri hleðslutengi á hverri stöð fyrir sig. Rafbílaeigendur eru ennfremur ekki tilbúnir að bíða eftir þjónustu og eru helst reiðubúnir að nýta sér hæghleðslustöðvar í bílastæðahúsum. Notendur virðast skiptast í tvo hópa varðandi það hvort að bjóða eigi upp á hleðslusnúrur á hleðslustöðvum eða hvort það sé ábyrgð bifreiðaeigenda að útvega sér slíkar snúrur.

Samþykkt: 
  • 13.6.2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/28224


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ritgerð Ingolfur lokaútgáfa Skemman.pdf3.74 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna