Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/28278
Markmið þessarar ritgerðar er tvíþætt. Annars vegar er henni ætlað að sýna þau sjónarmið sem lögð eru til grundvallar við beitingu 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 við ákvörðun refsingar. Hið fyrrnefnda ákvæði samanstendur af níu töluliðum. Verður gerð grein fyrir öllum töluliðunum ásamt því að leitast verður við að skýra orðalag þeirra. Takmörk 1. mgr. 70. gr. hgl. verða einnig rannsökuð eftir því sem mögulegt er miðað við þau sjónarmið sem hafa birst í dómaframkvæmd Hæstaréttar og héraðsdómstóla. Í þessu sambandi verður sjónum beint sérstaklega að ofbeldisbrotum þar sem ákært hefur verið fyrir 217. gr. alm. hgl. eða 218. gr. alm. hgl. og verður lögð sérstök áhersla á síðara ákvæðið. Þá verður jafnframt einblínt á þá dóma sem fallið hafa eftir síðustu aldamót. Sé sérstök ástæða til þess að geta dóms er ekki uppfyllir þessi skilyrði en hefur engu að síðu grundvallarþýðingu verður leitast við að gera grein fyrir honum í samhengi við ákvæði 1. mgr. 70. gr. hgl.
Hins vegar er ritgerðinni ætlað að veita innsýn í það hversu oft er að finna beina lagatilvitnun til ákvæða 1. mgr. 70. gr. hgl. við ákvörðun refsingar. Til þess að sýna fram á slíka beitingu ákvæðisins verða dregnar fram niðurstöður úr tveimur rannsóknum á dómaframkvæmd þar sem sú fyrri tók eingöngu til áfrýjaðra sakamála er vörðuðu líkamsárásir á árunum 2014-2016 á meðan sú síðari nær yfir öll áfrýjuð sakamál árið 2016 óháð brotategund.
The main objective of this study is twofold. On the one hand, the study will explore the different factors who are the basis for applying the provisions of Article 70(1) of the General Penal Code No. 19/1940 when determining penalties. The aforementioned article consist of nine provisions. All of those provisions will be explored as well as an attempt will be made to clarify the wording of the provisions. The limit of Article 70(1) will also be explored as made possible by the considerations presented in the legal analysis of Supreme court cases as well as district court cases. In this context, the focus will be particularly on cases of violence where charges have been made for violations of Article 217 or Article 218 of the General Penal Code with special emphasis on the latter article. The focus will also been on judgements which have been pronounced after the turn of the century. Should there be a reason to mention a case which doesn‘t meet these criteria but is nonetheless a case of fundamental importance, an attempt will be made to clarify that particular case in the context of Article 70(1) of the General Penal Code.
On the other hand, the study will give insight into how common it is to find a direct legal quote to the provisions of Article 70(1) of the General Penal Code when determining penalties. In order to demonstrate the application of the provision, results will be presented from two different studies of case law in which the former study only consisted of appealed criminal cases of violence in the period of 2014-2016 while the other consisted of all appealed criminal cases in the year 2016 regardless of the violation made.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA-ritgerd-LOKARIT.pdf | 870,43 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |